Akrakot - Fjarskipti - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
17. (932). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að umsókn um byggingarleyfi fyrir 12 metra farsímamastur við Jörfaveg vestan Fálkastígs verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynningin skal ná til íbúa og hagsmunaaðila á norðurnesi Álftaness.“ (Mál nr. 2302465)
Bæjarráð Garðabæjar
02
45.(2098). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að umsókn um byggingarleyfi fyrir 12 metra farsímamastur við Jörfaveg vestan Fálkastígs verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynningin skal ná til íbúa og hagsmunaaðila á norðurnesi Álftaness.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
14. fundur
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi sem gerir ráð fyrir staðsetningu 12 metra hás staurs fyrir farsímasenda við Jörfaveg vestan Fálkastígs.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Grenndarkynna skal öllum íbúum á Norðurnesi. Skýringarmynd sem sýnir útlit og umfang staursins skal vera hluti af grenndarkynntum gögnum.