Beint í efni

Vorbraut 3 og 7 - fjölgun íbúða - Deiliskipulag

Málsnúmer 2311111

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

15. fundur

Samkvæmt framlagðri tillögu að deiliskipulagi Hnoðraholts norður sem nær til fjölbýlishúslóða norðan Vorbrautar þá gerir tillagan ráð fyrir fjölgun íbúða um 3 íbúðir á hvorri lóð. Á fjölbýlishúsalóðum fyrir F-4 skulu bílastæði umfram þau sem sýnd eru sem leiðbeinandi á uppdrætti vera innan byggingarreits kjallara eða jarðhæðar.
Skipulagsnefnd hefur vísað framlagðri tillögu að uppfærðu deiliskipulagi Hnoðraholts norður til auglýsingar í samræmi við 41.gr. og 1.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

14. fundur

Skipulagsstjóri gerði grein fyrir athugun á heildaráhrifun og fordæmisgildi fjölgunar íbúða.
Skipulagsstjóra falið að vinna tillögu að breytingu deiliskipulags sem nær til allra fjölbýlishúsalóða við Vorbraut.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

13. fundur

Lögð fram tillaga að útfærslu á fjölbýlishúsum að Vorbraut 3 og 7 þar sem gert er ráð fyrir bílakjallara og fjölgun íbúða um 4 til 5 í hvoru húsi.
Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði. Athuga skal heildaráhrif og fordæmisgildi breytingartillögunnar.