Vorbraut 1, br á dsk Hnoðraholts norður.
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
15. fundur
Samkvæmt framlagðri tillögu að deiliskipulagi Hnoðraholts norður sem nær til fjölbýlishúslóða norðan Vorbrautar þá gerir tillagan ráð fyrir fjölgun íbúða um eina íbúð að Vorbraut 1 og að byggingarreitur fyrir bílskýli verði við lóðarmörk að Vorbraut 3.
Skipulagsnefnd hefur vísað framlagðri tillögu að uppfærðu deiliskipulagi Hnoðraholts norður til auglýsingar í samræmi við 41.gr. og 1.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
14. fundur
Skipulagsstjóri gerði grein fyrir athugun á heildaráhrifun og fordæmisgildi fjölgunar íbúða.
Skipulagsstjóra falið að vinna tillögu að breytingu deiliskipulags sem nær til allra fjölbýlishúsalóða við Vorbraut.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
13. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður sem gerir ráð fyrir því að byggingarreitur verði skilgreindur fyrir opið bílskýli og reiðhjólaskýli við lóðarmörk að Vorbraut 3. Bílageymsla fyrir tvo bíla verði á jarðhæð og að íbúð fjölgi um eina úr 6 í 7.
Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði. Athuga skal heildaráhrif og fordæmisgildi breytingartillögunnar.