Beint í efni

Afgreiðsla íþrótta- og tómstundaráðs varðandi reglur um hvatapeninga 2024.

Málsnúmer 2309016

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

48. (2101). fundur

Bæjarráð samþykkir reglur um hvatapeninga árið 2024. Samkvæmt reglunum verða hvatapeningar óbreyttir kr. 55.000. Í reglunum er nýtt ákvæði um viðbótarhvatapeninga kr. 15.000 sem eru tekjutengdir. Viðmið tekna erum þau sömu og í reglum Garðabæjar um tekjutengingu afslátta.

Fylgiskjöl

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

02

23. fundur

Fjallað um drög að reglum um hvatapeninga ársins 2024.

ÍTG samþykkir reglur um hvatapeninga fyrir árið 2024. Fjárhæð hvatapeninga verður óbreytt, 55.000 kr. fyrir börn aldrinum 5-18 ára. Sú nýbreytni verður tekin upp að hvatapeningar verða tekjutengdir. Heimili sem eru undir nánar tilgreindum viðmiðunartekjum geta sótt um „viðbótarhvatapeninga“ að fjárhæð 15.000 kr. fyrir hvert barn í þeirra forsjá. ÍTG leggur áherslu á að þessar nýju reglur verði vel kynntar, einkum hvað varðar „viðbótarhvatapeninga“ fyrir tekjulægri heimili.

Bæjarráð Garðabæjar

03

43.(2096). fundur

Lögð fram greinargerð íþrótta- og tómstundaráðs um hvatapeningakerfi Garðabæjar og mögulegar útfærslur, dags. í nóvember 2023.

Greinargerðinni fylgir tillaga um að tekin verði upp tekjutenging hvatapeninga á árinu 2024. Sem dæmi um útfærslu kemur fram að fjölskyldur sem eru undir skilgreindum viðmiðunartekjum eða uppfylla sambærileg skilyrði og gilda um afslátt leikskólagjalda, öðlist rétt á 15.000 kr. viðbótargreiðslu hvatapeninga eða 70.000 kr. heildargreiðslu hvatapeninga á hvert barn í þeirra forsjá í stað 55.000 kr. Lagt er til að fræðslu- og menningarsviði verði falið að semja nánari reglur og koma með tillögur að útfærslu á umsóknarferli.

Bæjarráð vísar greinargerðinni til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2024.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

04

22. fundur

Greinargerð ÍTG um hvatapeninga.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar leggur til óbreytta upphæð hvatapeninga vegna ársins 2024 kr. 55.000 á hvert barn frá og með 5 ára til og með 18 ára. En ráðið leggur til að tekin verði upp tekjutenging auka hvatapeninga á árinu 2024. Þá þannig sem dæmi, að fjölskyldur sem eru undir skilgreindum viðmiðunartekjum eða uppfylla sambærileg skilyrði og gilda um afslátt leikskólagjalda, öðlist rétt á 15.000 kr. greiðslu aukahvatapeninga á hvert barn í þeirra forsjá.

ÍTG hefur það að augnamiði með tillögu sinni að skapa umhverfi í hvatapeningakerfinu sem veiti jöfn tækifæri fyrir hvert barn í bænum óháð félags- eða fjárhagslegri stöðu foreldra.
ÍTG mun halda vinnu sinni áfram við að rýna hvatapeningakerfi bæjarins. Meðal þess sem ráðið mun skoða eru leiðir til að auka nýtingu hvatapeninga, þá sérstaklega meðal eldri aldurshópa en söguleg gögn sýna fram á að nýtingarhlutfallið lækkar verulega um og eftir 15 ára aldurinn. Íþrótta- og tómstundaráð mun einnig efna til samvinnufunda með félögum í bænum, foreldrum og unglingum meðal annars með það fyrir augum að greina og skoða leiðir til að bæta hvatapeningakerfi Garðabæjar.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

05

21. fundur

Framhaldsumræða frá síðasta fundi: Rædd er greinargerð ÍTG um Hvatapeninga barna, þróun þeirra frá 2005 og áhrif mögulegra breytinga vegna fjárhagsstöðu, fjölgreina- eða systkinauppbótar á styrkupphæðina gagnvart bæjarsjóði, barnafjölskyldum og frístundastarfi.

Framhaldsumræða frá síðasta fundi: Rædd er greinargerð ÍTG um Hvatapeninga barna, þróun þeirra frá 2005 og áhrif mögulegra breytinga vegna fjárhagsstöðu, fjölgreina- eða systkinauppbótar á styrkupphæðina gagnvart bæjarsjóði, barnafjölskyldum og frístundastarfi.
Ákveðið var að halda umræðunni áfram. Skoðaðar verði leiðir til að auka nýtingu unglinga á hvatapeningum svo sem með auglýsingum, samvinnu við félög um aukin tilboð, frekari greiningu á áhugamálum unglinganna og breytingum sem eiga sér stað hjá þeim.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

06

20. fundur

Til umræðu er greinargerð ÍTG um Hvatapeninga barna, þróun þeirra frá 2005 og áhrif mögulegra breytinga vegna fjárhagsstöðu, fjölgreina- eða systkinauppbótar á styrkupphæðina gagnvart bæjarsjóði, barnafjölskyldum og frístundastarfi.

Til umræðu er vinna við greinargerð ÍTG um hvatapeninga barna, þróun þeirra frá 2005 og áhrif mögulegra breytinga vegna fjárhæðar hvatapeninga, fjölgreina- eða systkinauppbótar á styrkupphæðina gagnvart bæjarsjóði, barnafjölskyldum og frístundastarfi.
Ákveðið var að halda áfram greiningarvinnu til að undirbúa greinargerð sem nýst getur til bæjarstjórnar við gerð fjárhagsáætlunar 2024.

Bæjarráð Garðabæjar

07

33. (2086). fundur

Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir samantekt um greiningu á stöðu og þróun hvatapeninga hjá Garðabæ sem stuðning við íþrótta- og tómstundaiðkun barna og unglinga.

Bæjarráð vísar samantektinni til umfjöllunar íþrótta- og tómstundaráðs.