22. fundur
22. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
08.11.2023
Kl. 08:00 - 09:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - formaður
- Harpa Rós Gísladóttir - aðalmaður
- Laufey Jóhannsdóttir - aðalmaður
- Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Arnar Hólm Einarsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi
- Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Kári Jónsson
Dagskrá
Málsnúmer 2311097
01
Fjárhagsáætlun 2024 - málaflokkur 06
Lúðvík Hjalti Jónsson fjármálastjóri Garðabæjar gerir grein fyrir vinnu við fjárhagsáætlun ársins 2024 og stöðu bæjarsjóðs.
Lúðvík Hjalti Jónsson fjármálastjóri Garðabæjar gerði grein fyrir vinnu við fjárhagsáætlun ársins 2024 og stöðu bæjarsjóðs. Ljóst er að aðhalds er þörf í rekstri næsta árs.
Málsnúmer 2309016
02
Hvatapeningar 2024 reglur
Greinargerð ÍTG um hvatapeninga.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar leggur til óbreytta upphæð hvatapeninga vegna ársins 2024 kr. 55.000 á hvert barn frá og með 5 ára til og með 18 ára. En ráðið leggur til að tekin verði upp tekjutenging auka hvatapeninga á árinu 2024. Þá þannig sem dæmi, að fjölskyldur sem eru undir skilgreindum viðmiðunartekjum eða uppfylla sambærileg skilyrði og gilda um afslátt leikskólagjalda, öðlist rétt á 15.000 kr. greiðslu aukahvatapeninga á hvert barn í þeirra forsjá.
ÍTG hefur það að augnamiði með tillögu sinni að skapa umhverfi í hvatapeningakerfinu sem veiti jöfn tækifæri fyrir hvert barn í bænum óháð félags- eða fjárhagslegri stöðu foreldra.
ÍTG mun halda vinnu sinni áfram við að rýna hvatapeningakerfi bæjarins. Meðal þess sem ráðið mun skoða eru leiðir til að auka nýtingu hvatapeninga, þá sérstaklega meðal eldri aldurshópa en söguleg gögn sýna fram á að nýtingarhlutfallið lækkar verulega um og eftir 15 ára aldurinn. Íþrótta- og tómstundaráð mun einnig efna til samvinnufunda með félögum í bænum, foreldrum og unglingum meðal annars með það fyrir augum að greina og skoða leiðir til að bæta hvatapeningakerfi Garðabæjar.
Málsnúmer 2311098
03
Íþróttafólk ársins 2023- Íþróttahátíð Garðabæjar jan 24
ÍTG ákveður fyrirkomulag á Íþróttahátíð Garðabæjar 7.janúar 2024
ÍTG samþykkir að halda Íþróttahátíð Garðabæjar 7. janúar 2024 kl. 13:00 í Miðgarði þar sem afhentar verða viðurkenningar vegna ársins 2023.
Viðurkenningar verða veittar fyrir:
a) Þjálfarar ársins, karl og kona
b) Lið ársins í hópíþróttum
c) Fyrsta skipti með A-landsliði
d) Fyrsta skipti með U-landsliði
e) Frammistaða á erlendum vettvangi, verðlaun á NM, EM, HM (eða sambærilegu)
f) Heiðursviðurkenningar fyrir störf að félagsmálum
g) Íþróttafólk ársins, karl og kona
Málsnúmer 2310006
04
Samningur við hestamannafélagið Sprett
Hestamannafélagið Sprettur óskar eftir mánaðarlegum rekstrarstyrk vegna launa Yfirþjálfara yngri flokka í Spretti.
Jafnframt er óskað eftir styrk til áhaldakaupa.
ÍTG samþykkir að styrkja Hestamannafélagið Sprett til áhaldakaupa vegna barna- og unglingastarfs um kr 500.000,-
Varðandi ósk um styrk til ráðningar yfirþjálfara barna- og unglinga er vísað til samsstarfssamnings við Garðabæ.
Málsnúmer 2311118
05
Æskulýðsstarf Garðasóknar 2023
Skýrsla um æskulýðsstarf Garðasóknar lögð fram.
Lögð var fram skýrsla Garðasóknar um æskulýðsstarf í sókninni veturinn 2022/2023. Í skýrslunni sem er 26 blaðsíður kemur fram að sóknin leggur sig fram um að bjóða upp á vandað, fjölbreytt og metnaðarfullt starf fyrir börn og ungmenni. Allt æskulýðsstarf er þátttakendum að kostnaðarlausu fyrir utan ferðalög í Vatnaskóg en sóknin ver um 35 milljónum króna á ársgrundvelli í starfið.
Íþrótta- og tómstundaráð þakkar Garðasókn fyrir greinargóða skýrslu og fagnar því metnaðarfulla æskulýðsstarfi sem þar greinir.
Málsnúmer 2310625
06
Herdís Björg Jóhannsdóttir - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Umsókn um ferðastyrk kr. 20.000 til Herdísar Bjargar Jóhannsdóttur hestamannafélaginu Spretti vegna HM í hestaíþróttum í Hollandi 31.júlí til 15. ágúst 2023.
ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Herdísar Bjargar Jóhannsdóttur hestamannafélaginu Spretti vegna HM í hestaíþróttum í Hollandi 31.júlí til 15. ágúst 2023.
a. Íslandsmeistaramót í Karate í Mýrinni
Íslandmeistaramót fullorðinna í kumite og Íslandsmeistaramót ungmenna í kumite fór fram sunnudaginn 5. nóvember í Mýrinni á vegum Karatesambands Íslands. Níu keppendur voru skráðir til keppni frá fjórum félögum í fullorðinnaflokki og 34 keppendur frá sex karatefélögum í ungmennaflokki.
Íþrótta- og tómstundaráð óskar Karatesambandi Íslands til hamingju með vel heppnað mót og fagnar því að viðburðir af þessu tagi fari fram í Garðabæ.