Beint í efni

Fjárhagsáætlun - málaflokkur 06

Málsnúmer 2311097

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

33. fundur

Farið yfir fram komna tillögu að fjárhagsáætlun vegna málaflokks 06 fyrir árið 2025 með fjármálastjóra Garðabæjar.

Fjármálastjóri Garðabæjar kynnti frumvarp að fjárhagsáætlun sem var lögð fram til fyrri umræðu bæjarstjórnar 7. nóvember sl. Fjármálastjóri fór sérstaklega yfir málaflokkinn æskulýðs- og íþróttamál og hvernig áætlunin horfir við þeim málaflokki sem íþrótta- og tómstundaráð fjallar um. Áfram verður unnið að fjárhagsáætlun næstu vikur og frumvarp að fjárhagsáætlun verður lagt fram til seinni umræðu í bæjarstjórn 5. desember 2024.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

02

22. fundur

Lúðvík Hjalti Jónsson fjármálastjóri Garðabæjar gerir grein fyrir vinnu við fjárhagsáætlun ársins 2024 og stöðu bæjarsjóðs.

Lúðvík Hjalti Jónsson fjármálastjóri Garðabæjar gerði grein fyrir vinnu við fjárhagsáætlun ársins 2024 og stöðu bæjarsjóðs. Ljóst er að aðhalds er þörf í rekstri næsta árs.