Beint í efni

Æskulýðsstarf Garðasóknar 2023

Málsnúmer 2311118

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

22. fundur

Skýrsla um æskulýðsstarf Garðasóknar lögð fram.

Lögð var fram skýrsla Garðasóknar um æskulýðsstarf í sókninni veturinn 2022/2023. Í skýrslunni sem er 26 blaðsíður kemur fram að sóknin leggur sig fram um að bjóða upp á vandað, fjölbreytt og metnaðarfullt starf fyrir börn og ungmenni. Allt æskulýðsstarf er þátttakendum að kostnaðarlausu fyrir utan ferðalög í Vatnaskóg en sóknin ver um 35 milljónum króna á ársgrundvelli í starfið.
Íþrótta- og tómstundaráð þakkar Garðasókn fyrir greinargóða skýrslu og fagnar því metnaðarfulla æskulýðsstarfi sem þar greinir.