Íþróttafólk ársins 2023- Íþróttahátíð Garðabæjar jan 24
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
25. fundur
Afreksstyrkur til Íþróttafólks Garðabæjar 2023
ÍTG samþykkir styrk til Íþróttafólks Garðabæjar 2023.
Ísold Sævarsdóttir körfuboltakona í Stjörnunni og frjálsíþróttakona í FH kr. 300.000,-
Friðbjörn Bragi Hlynsson kraftlyftingamaður í Stjörnunni kr. 300.000,-
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
02
24. fundur
ÍTG velur úr tilnefningum einn karl og eina konu.
Stuðst er við niðurstöðu úr almennri íbúakosningu sem var opin 22.desember til 1. janúar.
Valið er lið ársins í hópíþróttum.
Útnefndir eru þjálfarar ársins sem verið hafa til fyrirmyndar í sínu starfi.
Heiðursviðurkenningar fyrir störf að félagsmálum ákveðnar.
Fimm einstaklingar kepptu í fyrsta skipti fyrir A-landslið og 40 einstaklingar kepptu í fyrsta skipti fyrir yngri landslið á árinu 2023.
Sex fá viðurkenningu fyrir árangur á NM, EM eða HM.
Í kjöri til íþróttakonu Garðabæjar voru Herdís Björg Jóhannsdóttir hestakona, Hulda Clara Gestsdóttir kylfingur, Irma Gunnarsdóttir frjálsíþróttakona, Ísold Sævarsdóttir frjálsíþrótta- og körfuboltakona og Lucie Martinsdóttir kraftlyftingakona.
Ísold Sævarsdóttir er íþróttakona Garðabæjar 2023.
Í kjöri til íþróttakarls Garðabæjar voru Aron Snær júlíusson kylfingur, Dúi Þór Jónsson körfuboltamaður,Eggert Aron Guðmundsson knattspyrnumaður, Friðbjörn Bragi Hlynsson kraftlyftingamaður og Starri Friðriksson handknattleiksmaður.
Friðbjörn Bragi Hlynsson er íþróttakarl Garðabæjar 2023
Stuðst er við niðurstöðu úr almennri íbúakosningu sem var opin 22.desember til 1. janúar. Alls kusu 2654 um þær fimm konur og fimm karla sem voru í kjöri.
Mfl. karla UMFÁ í körfubolta er lið ársins í hópíþróttum.
Þjálfarar ársins sem verið hafa til fyrirmyndar í sínu starfi eru Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir knattspyrnuþjálfari fatlaðra og Vilhjálmur Halldórsson handboltþjálfari.
Heiðursviðurkenningar fyrir störf að félagsmálum hljóta Guðmundur Jónsson fyrrverandi formaður handknattleiksdeildar Stjörnunnar og Margrét Tómasdóttir fv. skátaforingi og stjórnarmaður í hestamannafélaginu Spretti.
Viðurkenningar hljóta fimm einstaklingar sem kepptu í fyrsta skipti fyrir A-landslið og 40 einstaklingar sem kepptu í fyrsta skipti fyrir yngri landslið á árinu 2023.
Sex einstaklingar fá viðurkenningu fyrir árangur á NM, EM eða HM.
Í framhaldi af umræðu um inngildingu kynseginfólks var ákveðið að leita upplýsinga til annarra sveitarfélaga um fyrirkomulag þeirra og sjónarmið við val á íþróttafólki ársins auk þess að hefja samtalið við frjálsu félögin í bænum. Íþróttafólk Garðabæjar árið 2024 verður útnefnt í janúar 2025
Bæjarráð Garðabæjar
03
48. (2101). fundur
Bæjarráð vísar tillögunni til umfjöllunar og nánari útfærslu íþrótta- og tómstundarráðs.
Fylgiskjöl
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
04
23. fundur
ÍTG fer yfir tilnefningar sem hafa borist og velur 5 karla og 5 konur til að vera í kjöri til íþróttafólks Garðabæjar 2023.
ÍTG tilnefnir eftirfarandi íþróttafólk til kjörs íþróttakarls og íþróttakonu Garðabæjar.
Konur:
Herdís Björg Jóhannsdóttir hestakona Spretti
Hulda Klara Gestsdóttir kylfingur GKG
Irma Gunnarsdóttir frjálsíþróttakona FH
Ísold Sævarsdóttir körfuboltakona Stjörnunni og frjálsíþróttakona FH
Lucie Martinsdóttir kraftlyftingakona Stjörnunni
Karlar:
Aron Snær Júlíusson golfari GKG
Dúi Þór Jónsson körfuboltamaður Álftanesi
Eggert Aron Guðmundsson knattspyrnumaður Stjörnunni
Friðbjörn Bragi Hlynsson kraftlyftingamaður Stjörnunni
Starri Friðriksson handboltamaður Stjörnunni
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
05
22. fundur
ÍTG ákveður fyrirkomulag á Íþróttahátíð Garðabæjar 7.janúar 2024
ÍTG samþykkir að halda Íþróttahátíð Garðabæjar 7. janúar 2024 kl. 13:00 í Miðgarði þar sem afhentar verða viðurkenningar vegna ársins 2023.
Viðurkenningar verða veittar fyrir:
a) Þjálfarar ársins, karl og kona
b) Lið ársins í hópíþróttum
c) Fyrsta skipti með A-landsliði
d) Fyrsta skipti með U-landsliði
e) Frammistaða á erlendum vettvangi, verðlaun á NM, EM, HM (eða sambærilegu)
f) Heiðursviðurkenningar fyrir störf að félagsmálum
g) Íþróttafólk ársins, karl og kona