23. fundur
23. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
13.12.2023
Kl. 08:00 - 09:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - formaður
- Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Arnar Hólm Einarsson - aðalmaður
- Lilja Lind Pálsdóttir - varamaður
- Stefanía Magnúsdóttir - varamaður
Starfsmenn
- Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi
- Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi
Ritari
- Kári Jónsson
Dagskrá
Málsnúmer 2311253
01
Samskiptasáttmáli Garðabæjar 2023
Kynning
Edda Björg Sigurðardóttir kynnti Samskiptasáttmála Garðabæjar sem unnið hefur verið að undanfarin misseri.
ÍTG fagnar þeirri vinnu sem lögð hefur verið í samskiptasáttmálann og telur mikilvægt að taka upp kynningar og samræður við íþróttafélög og önnur frjáls félög í Garðabæ.
Málsnúmer 2311098
02
Íþróttafólk ársins 2023- Íþróttahátíð Garðabæjar jan 24
ÍTG fer yfir tilnefningar sem hafa borist og velur 5 karla og 5 konur til að vera í kjöri til íþróttafólks Garðabæjar 2023.
ÍTG tilnefnir eftirfarandi íþróttafólk til kjörs íþróttakarls og íþróttakonu Garðabæjar.
Konur:
Herdís Björg Jóhannsdóttir hestakona Spretti
Hulda Klara Gestsdóttir kylfingur GKG
Irma Gunnarsdóttir frjálsíþróttakona FH
Ísold Sævarsdóttir körfuboltakona Stjörnunni og frjálsíþróttakona FH
Lucie Martinsdóttir kraftlyftingakona Stjörnunni
Karlar:
Aron Snær Júlíusson golfari GKG
Dúi Þór Jónsson körfuboltamaður Álftanesi
Eggert Aron Guðmundsson knattspyrnumaður Stjörnunni
Friðbjörn Bragi Hlynsson kraftlyftingamaður Stjörnunni
Starri Friðriksson handboltamaður Stjörnunni
Málsnúmer 2309016
03
Hvatapeningar 2024 reglur
Fjallað um drög að reglum um hvatapeninga ársins 2024.
ÍTG samþykkir reglur um hvatapeninga fyrir árið 2024. Fjárhæð hvatapeninga verður óbreytt, 55.000 kr. fyrir börn aldrinum 5-18 ára. Sú nýbreytni verður tekin upp að hvatapeningar verða tekjutengdir. Heimili sem eru undir nánar tilgreindum viðmiðunartekjum geta sótt um „viðbótarhvatapeninga“ að fjárhæð 15.000 kr. fyrir hvert barn í þeirra forsjá. ÍTG leggur áherslu á að þessar nýju reglur verði vel kynntar, einkum hvað varðar „viðbótarhvatapeninga“ fyrir tekjulægri heimili.
Málsnúmer 1305056
04
Tennisfélag Garðabæjar
Ársskýrsla Tennisfélags Garðabæjar fyrir 2022
Ársskýrsla Tennisfélags Garðabæjar fyrir árið 2022 lögð fram þar sem fram kemur fjöldi iðkenda og aðstaða félagsins til æfinga í Tennishöllinni í Kópavogi. Árið 2022 tóku í heildina 95 börn og unglingar þátt í starfi félagsins, þar af var um 61 einstaklingur sem æfði á sumarnámskeiðum og 34 börn og unglingar úr Garðabæ sem æfðu tennis 2-5 sinnum í viku. TFG leggur áherslu á að komið verði upp aðstöðu fyrir íþróttina í Garðabæ.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2311243
05
Freyja Örk Sigurðardóttir - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Umsókn um ferðastyrk kr. 20.000 til Freyju Arkar Sigurðardóttur vegna HM í 10 dönsum í Bremen í Þýskalandi 1.6.2023
ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Freyju Arkar Sigurðardóttur vegna HM í 10 dönsum í Bremen í Þýskalandi 1.6.2023
Málsnúmer 2311242
06
Freyja Örk Sigurðardóttir - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Umsókn um ferðastyrk til Freyju Arkar Sigurðardóttur vegna International Competition London í dansi 2.10.2023.
ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Freyju Arkar Sigurðardóttur vegna International Competition London í dansi 2.10.2023.
Málsnúmer 2310011
07
Sonja Lind Sigsteinsdóttir - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Umsókn um ferðastyrk til Sonju Lindar Sigsteinsdóttur Vegna ferðar á vegum HSÍ með U19 09.06 2023
ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Sonju Lindar Sigsteinsdóttur Vegna ferðar á vegum HSÍ með U19 09.06 2023