Beint í efni

25. fundur

14.02.2024
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

25. fundur

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi

14.02.2024

Kl. 08:00 - 09:40

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - formaður
  • Harpa Rós Gísladóttir - aðalmaður
  • Laufey Jóhannsdóttir - aðalmaður
  • Arnar Hólm Einarsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs

Ritari

  • Kári Jónsson

Gestur fundarins var Hulda Hauksdóttir deildarstjóri þjónustu og stafrænnar þróunar

Dagskrá

Málsnúmer 2310233

01

Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2023

Hulda Hauksdóttir fór yfir íbúakönnun í Garðabæ 2023. Garðabær kemur vel út miðað við önnur sveitarfélög landsins með yfir 7 þúsund íbúa. Fram kom að unnið verður að frekari greiningu með rýnihópum á þeim þáttum þar sem Garðabær fær lakasta niðurstöðu í þessum mælingum. Mikil ánægja mælist með íþróttaaðstöðuna í bænum þar sem 85% aðspurðra segjast ánægðir.

Málsnúmer 2309674

02

Rannsóknir og Greining samningur 23 til 24

Kynning á niðurstöðum rannsóknar R&G meðal nemenda í 5., 6., og 7. bekk frá nóvember 2023.

Einnig niðurstöður 8., 9. og 10.bekkjar frá nóvember 2023

Farið var yfir niðurstöður rannsóknar R&G meðal nemenda í 5., 6., og 7. bekk og 8., 9. og 10.bekkjar sem lögð var fyrir í október/nóvember 2023. Sérstök kynning var haldin mánudaginn 11. feb. fyrir skólastjórnendur og pólitíska fulltrúa í Garðabæ. Frekari kynningar eru ráðgerðar í grunnskólunum fyrir nemendur og samfélag foreldra á næstu vikum.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2401327

03

Hvatapeningar 2023

Skýrsla um nýtingu hvatapeninga ársins 2023 eftir árgöngum og kynjum.

Skýrsla um nýtingu hvatapeninga ársins 2023 eftir árgöngum og kynjum.

Heildarúthlutun ársins 2023 var 153.772.649,- kr. borið saman við 133. 294.802,- kr. árið áður. Rafrænar færslur sem greiddar voru frá Garðabæ til félaga voru 140.699.087,- eða

91%, handfærðar færslur sem greiddar eru til foreldra skv. greiðslukvittunum voru 13.073.562,- 9% af heildarfærslum.

2901 barn af 3758 börnum sem rétt höfðu á hvatapeningum nýttu sér rétt sinn til hvatapeninga að einhverju leyti árið 2023, eða 77% en þau nýttu 74% af sínum rétti til hvatapeninga.

Félög innan Garðabæjar fengu greiddar kr. 110.415.795,- eða 78,48% af þessum rafrænu færslum.

Málsnúmer 2402072

04

Ungmennaþing H23 niðurstöður

Kynning á helstu niðurstöðum Ungmennaþings frá október 2023.

Helstu niðurstöðum Ungmennaþings frá október 2023 voru kynntar. Fram kom að Ungmennaráð mun hafa óskað eftir að koma inn á fund bæjarstjórnar til að fara yfir helstu niðurstöður og fylgja eftir því sem þau telja brýnast.

Félagsmiðstöðvarnar eru þegar farnar að taka tillit til ábendinga UÞ og UR í sínu starfi svo sem með sameiginleg böll o.fl.

Málsnúmer 2312273

05

Styrkbeiðni vegna íþróttamóts í maí 2024.

ÍTG telur sér ekki fært um að verða við beiðni Hestamannafélagsins Spretts um sérstakan fjárstyrk til að halda innanfélagsmót en mun taka umræðu við félagið um samstarfssamning og nánari ákvæði sem eru nú til endurskoðunar.

Málsnúmer 2312419

06

Afreksstyrkir 2024

Afgreiðsla afreksstyrkja sem auglýstir voru til umsóknar til 1. febrúar 2024.

ÍTG tók til úthlutunar fyrri úthlutun úr afrekssjóði Garðabæjar. Til úthlutunar nú eru kr. 1.500.000,-

Níu einstaklinga hljóta afreksstyrk nú, þau eru:

Pétur Fannar Gunnarsson, Dansíþróttafélagi Reykjavíkur kr. 200.000

Polina Oddr, Dansíþróttafélagi Reykjavíkur kr. 200.000

Irma Gunnarsdóttir, Frjálsíþróttadeild FH kr. 200.000

Ingeborg Eide Garðarsdóttir, Frjálsíþróttadeild Ármanns kr. 200.000

Gabríela Einarsdóttir, Klifurfélagi Reykjavíkur kr. 140.000

Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG kr. 140.000

Þórdís Unnur Bjarkadóttir, Bogfimifélaginu Boganum kr. 140.000

Eden Ólafsson, Dansíþróttafélaginu Hvönn kr. 140.000

Freyja Örk Sigurðardóttir, Dansíþróttafélaginu Hvönn kr. 140.000

Málsnúmer 2311098

07

Íþróttafólk ársins 2023- Íþróttahátíð Garðabæjar jan 24

Afreksstyrkur til Íþróttafólks Garðabæjar 2023

ÍTG samþykkir styrk til Íþróttafólks Garðabæjar 2023.

Ísold Sævarsdóttir körfuboltakona í Stjörnunni og frjálsíþróttakona í FH kr. 300.000,-

Friðbjörn Bragi Hlynsson kraftlyftingamaður í Stjörnunni kr. 300.000,-

Málsnúmer 2402011

08

Ástrós Arnarsdóttir - Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Umsókn um afreksstyrk fyrir Gunnlaug Árna Sveinsson GKG.

ÍTG samþykkir afreksstyrk til GKG vegna Gunnlaugs Árna Sveinssonar kr. 140.000

Málsnúmer 2402008

09

Pétur Fannar Gunnarsson - Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Umsókn um afreksstyrk fyrir Pétur Fannar Gunnarsson Dansíþróttafélagi Reykjavíkur

ÍTG samþykkir afreksstyrk til Dansíþróttafélags Reykjavíkur vegna Péturs Fannars Gunnarssonar kr. 200.000

Málsnúmer 2402007

10

Polina Oddr - Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Umsókn um afreksstyrk fyrir Polina Oddr Dansfélagi Reykjavíkur

ÍTG samþykkir afreksstyrk til Dansíþróttafélags Reykjavíkur vegna Polina Oddr kr. 200.000

Málsnúmer 2402005

11

Þuríður Sóley Sigurðardóttir - Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Umsókn um afreksstyrk fyrir Gabríelu Einarsdóttur Klifurfélagi Reykjavíkur

ÍTG samþykkir afreksstyrk til Klifurfélags Reykjavíkur vegna Gabríelu Einarsdóttur kr. 140.000

Málsnúmer 2402004

12

Irma Gunnarsdóttir - Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Umsókn um afreksstyrk fyrir Irmu Gunnarsdóttur frjálsíþróttadeild FH

ÍTG samþykkir afreksstyrk til frjálsíþróttadeildar FH vegna Irmu Gunnarsdóttur kr. 200.000

Málsnúmer 2401460

13

Ingeborg Eide Garðarsdóttir - Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Umsókn um afreksstyrk fyrir Ingeborgu Eide Garðarsdóttur frjálsíþróttakonu í Ármanni

ÍTG samþykkir afreksstyrk til frjálsíþróttadeildar Ármanns vegna Ingeborgar Eide Garðarsdóttur kr. 200.000

Málsnúmer 2401276

14

Guðmundur Guðjónsson - Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Umsókn um afreksstyrk fyrir Þórdísi Unni Bjarkadóttur bogfimi

ÍTG samþykkir afreksstyrk til bogfimifélagsins Bogans vegna Þórdísar Unnar Bjarkadóttur kr. 140.000

Málsnúmer 2402024

15

Umsókn um styrk úr afrekssjóði fyrir Eden og Freyju

Umsókn um afreksstyrk fyrir dansarana Eden Ólafsson og Freyju Örk Sigurðardóttur

ÍTG samþykkir afreksstyrk til dansíþróttafélagsins Hvönn vegna Edens Ólafssonar og Freyju Arkar Sigurðardóttur kr. 140.000 á hvort þeirra. Samtals kr. 280.000,-

Málsnúmer 2401584

16

Atli Hrafn Hjartarson - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Umsókn um ferðastyrk kr. 40.000 fyrir Atla Hrafn Hjartarson vegna U16 í körfubolta, tvær ferðir: NM 27. júní til 4. júlí 2023 og EM 2.-14. ágúst 2023.

ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 40.000 fyrir Atla Hrafn Hjartarson vegna U16 í körfubolta, tvær ferðir: NM 27. júní til 4. júlí 2023 og EM 2.-14. ágúst 2023.

Málsnúmer 2402009

17

Polina Oddr - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Umsókn um 2 ferðastyrki kr. 20.000,- hvor styrkur til Polina Oddr vegna landsliðsferða í dansi 25.02.24 28.02.24 27.04.24 á World championship, universal, UK open, All England.

ÍTG samþykkir umsókn um 2 ferðastyrki kr. 20.000,- hvor styrkur til Polina Oddr vegna landsliðsferða í dansi 25.02.24 28.02.24 27.04.24 á World championship, universal, UK open, All England.

Málsnúmer 2402006

18

Pétur Fannar Gunnarsson - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Umsókn um 2 ferðastyrki kr 20.000,- hvor styrkur, til Péturs Fannars Gunnarssonar vegna ferða á dansmót í JAPAN, TAIWAN, KOREU, KINA og ENGLANDI í FEB, MARS, APRIL, MAI 2024.

ÍTG samþykkir umsókn um 2 ferðastyrki kr 20.000,- hvor styrkur, til Péturs Fannars Gunnarssonar vegna ferða á dansmót í JAPAN, TAIWAN, KOREU, KINA og ENGLANDI í FEB, MARS, APRIL, MAI 2024.