21. fundur
21. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
11.10.2023
Kl. 08:00 - 09:15
Um fundinn
Nefndarmenn
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - formaður
- Harpa Rós Gísladóttir - aðalmaður
- Laufey Jóhannsdóttir - aðalmaður
- Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Svanur Þorvaldsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Kári Jónsson
Dagskrá
Málsnúmer 2309016
01
Hvatapeningar 2024 reglur
Framhaldsumræða frá síðasta fundi: Rædd er greinargerð ÍTG um Hvatapeninga barna, þróun þeirra frá 2005 og áhrif mögulegra breytinga vegna fjárhagsstöðu, fjölgreina- eða systkinauppbótar á styrkupphæðina gagnvart bæjarsjóði, barnafjölskyldum og frístundastarfi.

Ákveðið var að halda umræðunni áfram. Skoðaðar verði leiðir til að auka nýtingu unglinga á hvatapeningum svo sem með auglýsingum, samvinnu við félög um aukin tilboð, frekari greiningu á áhugamálum unglinganna og breytingum sem eiga sér stað hjá þeim.
Málsnúmer 2308785
02
Forvarnavika Garðabæjar 2023
Forvarnavika Garðabæjar er nú í gangi. Hún hófst á forvarnadeginum 4. október og lýkur í dag 11. október. Þema forvarnadagsins er "Samskipti". Sérstök dagskrá er af því tilefni í öllum skólum Garðabæjar, leikskólum, grunnskólum og FG auk félagsmiðstöðva. Félög í frístundastarfi hafa verið hvött til að tileinka þessa daga í starfi sínu bætt samskipti.
Forvarnavika Garðabæjar hófst á forvarnadeginum 4. október og lýkur 11. október. Þema forvarnadagsins er "Samskipti". Sérstök dagskrá var í öllum skólum Garðabæjar, leikskólum, grunnskólum og FG auk félagsmiðstöðva. Félög í frístundastarfi hafa verið hvött til að tileinka þessa daga í starfi sínu bætt samskipti.
ÍTG leggur áherslu á mikilvægi áherslu á verndandi þætti í forvörnum og mikilvægi foreldrastarfs í því sambandi.
Málsnúmer 2310178
03
Umsókn Stjörnunnar um þátttökustyrk vegna NM í hópfimleikum 2023
ÍTG tekur fyrir umsókn Stjörnunnar um þátttökustyrk vegna hópfimleikaliða félagsins á NM sem fram fer í nóvember hér á landi.
ÍTG samþykkir að veita styrk til Ungmennafélagsins Stjörnunnar 540.000 kr.- vegna þátttöku tuttugu og sjö einstaklinga í meistaraflokkum fimleikadeildar félagsins á Norðurlandamóti í hópfimleikum sem fram fer í Laugardalshöll í Reykjavík 11. nóvember 2023. Stjarnan er á meðal þeirra félaga sem keppir fyrir Íslands hönd á mótinu.
Málsnúmer 2308003
04
Signý Lára Kristinsdóttir - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð 20.000 til Signýar Láru Kristinsdóttur vegna NM í kraftlyftingum 14.-18. september í Noregi.
ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð 20.000 til Signýar Láru Kristinsdóttur vegna NM í kraftlyftingum 14.-18. september í Noregi.
Málsnúmer 2310012
05
Sonja Lind Sigsteinsdóttir - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
ITG samþykkir ferðastyrk kr 20.000 til Sonju Lindar Sigsteinsdóttur vegna A-keppni EM U19 í handbolta kvenna í Rúmeníu 6.7.2023
ITG samþykkir ferðastyrk kr 20.000 til Sonju Lindar Sigsteinsdóttur vegna A-keppni EM U19 í handbolta kvenna í Rúmeníu 6.7.2023
Málsnúmer 2306578
06
Marinó Gregers Oddgeirsson - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
ITG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Marinó Gregers Oddgeirssonar vegna ferðar á NM U15 í körfubolta í Finnlandi 06.08.2023.
ITG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000 til Marinó Gregers Oddgeirssonar vegna ferðar á NM U15 í körfubolta í Finnlandi 06.08.2023.
Málsnúmer 2307369
07
Hinrik Veigar Hinriksson - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð kr. 20.000 til Hinriks Veigars Hinrikssonar vegna NM unglinga í kraftlyftingum í Noregi 14. september 2023.
ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð kr. 20.000 til Hinriks Veigars Hinrikssonar vegna NM unglinga í kraftlyftingum í Noregi 14. september 2023.
a. Svanur tilkynnti að þetta væri hans síðasti fundur að sinni og varamaður hans kæmi inn á næsta fundi. Hver það verður mun koma í ljós.