Forvarnavika Garðabæjar 2023
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
21. fundur
Forvarnavika Garðabæjar er nú í gangi. Hún hófst á forvarnadeginum 4. október og lýkur í dag 11. október. Þema forvarnadagsins er "Samskipti". Sérstök dagskrá er af því tilefni í öllum skólum Garðabæjar, leikskólum, grunnskólum og FG auk félagsmiðstöðva. Félög í frístundastarfi hafa verið hvött til að tileinka þessa daga í starfi sínu bætt samskipti.
Forvarnavika Garðabæjar hófst á forvarnadeginum 4. október og lýkur 11. október. Þema forvarnadagsins er "Samskipti". Sérstök dagskrá var í öllum skólum Garðabæjar, leikskólum, grunnskólum og FG auk félagsmiðstöðva. Félög í frístundastarfi hafa verið hvött til að tileinka þessa daga í starfi sínu bætt samskipti.
ÍTG leggur áherslu á mikilvægi áherslu á verndandi þætti í forvörnum og mikilvægi foreldrastarfs í því sambandi.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
02
20. fundur
Forvarnavika Garðabæjar 2023 er nú í undirbúningi 5.-11.október.
Þema vikunnar verður "samskipti".
Í grunnskólum verður unnið með námsefni frá KVAN í þjálfun samskipta og samskiptafærni.
Leikskóladeildin tekur efnið upp með börnunum.
Félagsmiðstöðvar leggja áherslu á samskipti í sínu starfi í samvinnu við skólana.
Unnið er að kynningarefni sem mun fylgja nýjum "samskiptasaáttmála" sem ætlað er að vinna gegn einelti.
Ungmennaráðið er virkjað í tengslum við þá kynningu.
Fulltrúi FG tekur efni forvarnavikunnar upp inna skólans.
Forvarnavika Garðabæjar 2023 er nú í undirbúningi 5.-11.október. Þema vikunnar verður "samskipti".
Í grunnskólum verður unnið með námsefni frá KVAN í þjálfun samskipta og samskiptafærni.
Leikskóladeildin tekur efnið upp með börnunum.
Félagsmiðstöðvar leggja áherslu á samskipti í sínu starfi í samvinnu við skólana.
Unnið er að kynningarefni sem mun fylgja nýjum "samskiptasáttmála" sem ætlað er að vinna gegn einelti. Ungmennaráðið er virkjað í tengslum við þá kynningu.
Fulltrúi FG tekur efni forvarnavikunnar upp inna skólans.