Umsókn Stjörnunnar um þátttökustyrk vegna NM í hópfimleikum 2023
Málsnúmer 2310178
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
21. fundur
ÍTG tekur fyrir umsókn Stjörnunnar um þátttökustyrk vegna hópfimleikaliða félagsins á NM sem fram fer í nóvember hér á landi.
ÍTG samþykkir að veita styrk til Ungmennafélagsins Stjörnunnar 540.000 kr.- vegna þátttöku tuttugu og sjö einstaklinga í meistaraflokkum fimleikadeildar félagsins á Norðurlandamóti í hópfimleikum sem fram fer í Laugardalshöll í Reykjavík 11. nóvember 2023. Stjarnan er á meðal þeirra félaga sem keppir fyrir Íslands hönd á mótinu.