Vinastræti 1-3 - Umsókn um byggingarleyfi ( 3. áfangi Urriðaholtsskóli)
Málsnúmer 2312042
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
02
32. (2133). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Garðabæ, kt. 570169-6109, leyfi fyrir byggingu 3. áfanga (sem er lokaáfangi) Urriðaholtsskóla, að Vinastræti 1-3.
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
03
10. fundur
Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti. Skipulagsstjóri óskar jafnframt eftir skýrari útlistun á bílastæðum á lóð á lóðaruppdrætti sem skal liggja fyrir við lokaúttekt. Samkvæmt sérskilmálum skulu bílastæði á lóð vera 130 en samkvæmt aðaluppdráttum eru þau aðeins 127. Ekki er unnt að telja bílastæði við sleppistæði sem almenn bílastæði.