Tölvubúnaður Garðabæjar
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
12. (945). fundur
"Bæjarstjórn samþykkir að gerður verði viðauki við fjárhagsáætlun 2024, samkvæmt 2.mgr. 63.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. (Mál nr. 2408576).
Framlag til tölvubúnaðar, að fjárhæð kr. 40.212.000."
Bæjarráð Garðabæjar
02
32. (2133). fundur
Sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs fór yfir minnisblað um tölvubúnað Garðabæjar. Fræðslu- og menningarsvið setur sér markmið varðandi tölvubúnað fyrir skólastigin. Þróunar- og þjónustusvið setur samskonar markmið fyrir starfsmenn bæjarins og aldur búnaðar, þannig að hann uppfylli öryggis- og gæðakröfur.
Lagt er til að endurnýjunarþörf verði mætt með því að forgangsraða búnaði fyrir börn.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja framlag að fjárhæð kr. 40.212.000, sem viðauka við fjárhagsáætlun 2024, samkvæmt 2.mgr. 63.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.