Nýibær á Garðaholti - Skrímslasmiðja
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
11. (963). fundur
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 28. ágúst 2025 varðandi fyrirspurn um rekstur verkstæðis, kaffihúss og sölubúðar í útihúsum austan Garðavegar á landi sem Nýibær hefur haft til umráða. Skipulagsnefnd telur að starfsemi skrímslasmiðju brjóti ekki í bága við deiliskipulag Garðahverfis sem er í næsta nágrenni. Gildandi aðalskipulag gerir ráð fyrir íbúðarbyggð á svæðinu. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu og því þarf að gera ráð fyrir því að starfsemin geti verið víkjandi þegar til þess kemur. Huga þarf vel að útfærslu á aðkomu frá Garðavegi og skal það gert í samráði við umhverfissvið.
Bæjarráð Garðabæjar
02
31. (2179). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 28. ágúst 2025 varðandi fyrirspurn um rekstur verkstæðis, kaffihúss og sölubúðar í útihúsum austan Garðavegar á landi sem Nýibær hefur haft til umráða. Skipulagsnefnd telur að starfsemi skrímslasmiðju brjóti ekki í bága við deiliskipulag Garðahverfis sem er í næsta nágrenni. Gildandi aðalskipulag gerir ráð fyrir íbúðarbyggð á svæðinu. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu og því þarf að gera ráð fyrir því að starfsemin geti verið víkjandi þegar til þess kemur. Huga þarf vel að útfærslu á aðkomu frá Garðavegi og skal það gert í samráði við Umhverfissvið.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
12. fundur
Lögð fram fyrirspurn um rekstur verkstæðis, kaffihúss og sölubúðar í útihúsum austan Garðavegar á landi sem Nýibær hefur haft til umráða. Skipulagsnefnd telur að starfsemi skrímslasmiðju brjóti ekki í bága við deiliskipulag Garðahverfis sem er í næsta nágrenni. Gildandi aðalskipulag gerir ráð fyrir íbúðarbyggð á svæðinu. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu og því þarf að gera ráð fyrir því að starfsemin geti verið víkjandi þegar til þess kemur. Huga þarf vel að útfærslu á aðkomu frá Garðavegi og skal það gert í samráði við Umhverfissvið.
Bæjarráð Garðabæjar
04
29. (2177). fundur
Lagt fram erindi Ölmu Bjarkar Ástþórsdóttur, Monsa ehf., Einars Péturssonar, Péturs Einarssonar og Ragnheiðar Jónsdóttur vaðandi endurbætur á húsakosti Nýja-bæjar, án þess þó að breyta ásýnd þeirra og mögulegs rekstrarleyfis í kjölfarið.
Bæjarráð vísar erindinu til skoðunar á umhverfissviði.