Kauptún 6 - Umsókn um deiliskipulagsbreytingu
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
4. (956). fundur
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum (AG, MB, HBE, GVG, GS, HRG, BTB, BDG, GK) gegn 2 (ÞÞ, IA) afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 13. febrúar 2025 varðandi breytingu deiliskipulags Kauptúns sem gerir ráð fyrir stækkun lóðarinnar Kauptúns 6 til suðurs og vesturs. Umhverfisstofnun sem benti í umsögn sinni á þau ákvæði náttúruverndarlaga að nútímahraun njóti sérstakrar verndar og forðast skuli að raska þau nema brýna nauðsyn beri til. Skipulagsnefnd benti á að tillagan hefði verið skoðuð ítarlega og henni breytt til þess að lágmarka það rask sem af henni gæti hlotist. Aðalskipulag gerir ráð fyrir því að tengibraut muni liggja frá Kauptúni yfir á fyrirhugaða stofnbraut í Setbergslandi og draga þær áætlanir verulega úr verndargildi hraunsins á þeim stað sem að tillagan gerir ráð fyrir stækkun lóðar með bílastæðum. Tillagan tekur sérstaklega tillit til áberandi hraunjaðars sem skal varðveita. Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna sem breytingu deiliskipulags Kauptúns skv. 41. gr. skipulagslaga.
Bæjarráð Garðabæjar
02
8. (2156). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 13. febrúar 2025 varðandi breytingu deiliskipulags Kauptúns sem gerir ráð fyrir stækkun lóðarinnar Kauptúns 6 til suðurs og vesturs.
Umhverfisstofnun sem benti í umsögn sinni á þau ákvæði náttúruverndarlaga að nútímahraun njóti sérstakrar verndar og forðast skuli að raska þau nema brýna nauðsyn beri til.
Skipulagsnefnd benti á að tillagan hefði verið skoðuð ítarlega og henni breytt til þess að lágmarka það rask sem af henni gæti hlotist. Aðalskipulag gerir ráð fyrir því að tengibraut muni liggja frá Kauptúni yfir á fyrirhugaða stofnbraut í Setbergslandi og draga þær áætlanir verulega úr verndargildi hraunsins á þeim stað sem að tillagan gerir ráð fyrir stækkun lóðar með bílastæðum. Tillagan tekur sérstaklega tillit til áberandi hraunjaðars sem skal varðveita.
Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna sem breytingu deiliskipulags Kauptúns skv. 41. gr. skipulagslaga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
2. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Kauptúns sem gerir ráð fyrir stækkun lóðarinnar Kauptúns 6 til suðurs og vesturs. Lagðar fram þær umsagnir sem bárust á auglýsingartíma.
Skipulagsstjóri gerði grein fyrir fundi með Umhverfisstofnun sem bendir í umsögn sinni á þau ákvæði náttúruverndarlaga að nútímahraun njóti sérstakrar verndar og forðast skuli að raska þau nema brýna nauðsyn beri til.
Skipulagsnefnd bendir á að tillagan hafi verið skoðuð ítarlega og henni breytt til þess að lágmarka það rask sem af henni gæti hlotist. Aðalskipulag gerir ráð fyrir því að tengibraut muni liggja frá Kauptúni yfir á fyrirhugaða stofnbraut í Setbergslandi og draga þær áætlanir verulega úr verndargildi hraunsins á þeim stað sem að tillagan gerir ráð fyrir stækkun lóðar með bílastæðum. Tillagan tekur sérstaklega tillit til áberandi hraunjaðars sem skal varðveita.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem breytingu deiliskipulags Kauptúns skv. 41. gr. skipulagslaga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
1. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Kauptúns sem gerir ráð fyrir stækkun lóðarinnar Kauptúns 6, ásamt umsögnum sem borist hafa. Vísað til úrvinnslu hjá Umhverfissviði.
Bæjarstjórn Garðabæjar
05
17. (950). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar frá fundi 7. nóvember 2024, að fengnu samþykki landeiganda, varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Kauptúns sem gerir ráð fyrir stækkun á lóðinni Kauptúni 6 til suðurs og austurs sem nemur alls um 2.580 m2. Tillagan gerir ráð fyrir því að heimilt verði að gera ráð fyrir bílastæðum á þeim tveimur svæðum sem bætast við lóðina. Lóðin yrði eftir sem áður innan landnotkunarreits 5.03 VÞ fyrir verslun og þjónustu í Kauptúni í Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030. Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41. gr. og 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010.
Samþykkt með 8 atkvæðum (AG, MB, GVG, SS, HRG, BTB, BDG, GK) gegn 2 (ÞÞ, IA).
Bæjarráð Garðabæjar
06
42. (2143). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar frá fundi 7. nóvember 2024, að fengnu samþykki landeiganda, varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Kauptúns sem gerir ráð fyrir stækkun á lóðinni Kauptúni 6 til suðurs og austurs sem nemur alls um 2.580 m2. Tillagan gerir ráð fyrir því að heimilt verði að gera ráð fyrir bílastæðum á þeim tveimur svæðum sem bætast við lóðina.
Lóðin yrði eftir sem áður innan landnotkunarreits 5.03 VÞ fyrir verslun og þjónustu í Kauptúni í Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030.
Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41. gr. og 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
14. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Kauptúns sem gerir ráð fyrir stækkun á lóðinni Kauptúni 6 til suðurs og austurs sem nemur alls um 2.580 m2. Tillagan gerir ráð fyrir því að heimilt verði að gera ráð fyrir bílastæðum á þeim tveimur svæðum sem bætast við lóðina.
Lóðin yrði eftir sem áður innan landnotkunarreits 5.03 VÞ fyrir verslun og þjónustu í Kauptúni í Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030.
Skipulagsstjóri gerði grein fyrir þeirri mótun sem átt hefur sér stað á tillögunni.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41. gr. og 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010.