Spilda í landi Grundar - Fyrirspurn um rekstur veislusalar
Málsnúmer 2501073
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
1. fundur
Lögð fram fyrirspurn eigenda Spildu A í landi Grundar við norðaustanverða Breiðabólsstaðatjörn hvort heimilað verði að reka veislusal í byggingunni sem í dag er nýtt undir garðyrkjufyrirtæki. Húsið var áður fjárhús en hefur verið breytt.
Vísað til úrvinnslu tillagna að deiliskipulagi Norðurness og tillögu að breytingu aðalskipulags sem verður unnin samhliða deiliskipulagstillögu.