Afgreiðsla skipulagsnefndar - Móaflöt 51 - Dsk. br. Flata
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
23. (2171). fundur
Bæjarráð staðfestir, skv. heimild í 5.mgr. 35.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 19. júní 2025 vegna tillögu að óverulegri breytingu deiliskipulags Flata, sem nær til lóðarinnar Móaflatar 51, að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Flata í samræmi við 41. og 2.mgr.43.gr. skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
10. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Flata, sem nær til lóðarinnar Móaflatar 51, að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Flata í samræmi við 41. og 2.mgr.43.gr. skipulagslaga nr.123/2010.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
7. (959). fundur
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 8. maí 2025 varðandi fyrirspurn um útfærslu á viðbyggingu við endaraðhús að Móaflöt 51. Skipulagsnefnd mat útfærsluna sem óverulega breytingu deiliskipulags Flata í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum raðhúslengjanna Móaflatar 29-39, Móaflatar 41-51 og Móaflatar 53-59.
Bæjarráð Garðabæjar
04
18. (2166). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 8. maí 2025 varðandi fyrirspurn um útfærslu á viðbyggingu við endaraðhús að Móaflöt 51.
Skipulagsnefnd mat útfærsluna sem óverulega breytingu deiliskipulags Flata í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum raðhúslengjanna Móaflatar 29-39, Móaflatar 41-51 og Móaflatar 53-59.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
8. fundur
Lögð fram fyrirspurn um útfærslu á viðbyggingu við endaraðhús að Móaflöt 51.
Skipulagsnefnd metur útfærsluna sem óverulega breytingu deiliskipulags Flata í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum raðhúslengjannna Móaflatar 29-39, Móaflatar 41-51 og Móaflatar 53-59.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
2. fundur
Lögð fram fyrirspurn um útfærslu á bílageymslu sem viðbyggingu norðan við endaraðhúsið Móaflöt 51.
Í kjölfar umræðu telur skipulagsnefnd að hæfilegur grunnflötur viðbyggingar á umræddri endalóð gæti verið 5 x 8 metrar, þ.e. flatarmál 40 m2. En einnig telur nefndin að til greina komi að brjóta upp grunnflöt viðbyggingar.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
1. fundur
Erindi lóðarhafa lagt fram. Vísað til úrvinnslu hjá Umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
14. fundur
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa að Móaflöt 51 sem lýtur að útfærslu á byggingu bílageymslu við efri enda raðhúslengjunnar.
Svar: Skipulagsnefnd telur að útfærslan sé í samræmi við svar nefndarinnar frá fundi þann 8. febrúar sl. hvað staðsetningu varðar og er svar nefndarinnar því jákvætt. Hvað stærð bílskúrs varðar telur skipulagsnefnd að stærð byggingarreits (8x8m = 60 m2) eins og hann kemur fram í fyrirspurn sé stærri en hægt sé að fallast á. Hæfilegra væri að miða við grunnflöt í líkingu við bílageymslu við hinn enda raðhúslengjunnar sem er um 40 m2.