Akrahverfi - deiliskipulagsbreyting - Undirgöng
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
4. (956). fundur
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 24. febrúar 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulagi Akrahverfis (Arnarnesland-Akrar) að lokinni auglýsingu og úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum. Tillagan var í kynningu frá 28. nóvember 2024 til 20. janúar 2025 en frestur var framlengdur um 10 daga. Lagðar fram þær athugasemdir og umsagnir sem bárust ásamt greiningum á þeim. Skipulagsnefnd telur fulla ástæðu til að taka þær áhyggjur íbúa í Akrahverfi alvarlega sem fram koma í athugasemdum og ábendingum um öryggi og flæði akandi umferðar umhverfis Akrahverfið og hefur vísað þeim t.a.m. til úrvinnslu við mótun deiliskipulags fyrir Arnarnesveg en sú deiliskipulagsvinna er farin af stað í samstarfi við Kópavogsbæ og í samráði við Vegagerðina. Fyrir liggja tillögur að umferðarbætandi aðgerðum á hringtorginu á gatnamótum Arnarnesvegar, Bæjarbrautar og Fífuhvammsvegar og stefnt er að því að ráðast í þær á þessu ári. Einnig er stefnt að því að fara í umferðarbætandi aðgerðir á Akrabraut, þar sem bætt verður við vinstribeygjuvasa, svo aðkoma bæði að Akrahverfi og matvöruverslun verði skilvirkari. Skipulagsnefnd leggur einnig til að bætt verði við ákvæði um hljóðvarnir meðfram lóðarmörkum fjölbýlishúsanna Línakurs 1 og 3 við Akrabraut. Hljóðvarnir munu einnig draga úr ljósmengun sem skapast vegna bílaumferðar um undirgöngin. Með vísan í þau atriði sem hér eru tilgreind og framlögð gögn samþykkir skipulagsnefnd tillöguna með ofangreindri breytingu í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Lögð fram greinargerð skipulagsstjóra þar sem að athugasemdum sem borist hafa er svarað lið fyrir lið. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða greinargerð.
Bæjarráð Garðabæjar
02
8. (2156). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 24. febrúar 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulagi Akrahverfis (Arnarnesland-Akrar) að lokinni auglýsingu og úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum. Tillagan var í kynningu frá 28. nóvember 2024 til 20. janúar 2025 en frestur var framlengdur um 10 daga. Lagðar fram þær athugasemdir og umsagnir sem bárust ásamt greiningum á þeim. Skipulagsnefnd telur fulla ástæðu til að taka þær áhyggjur íbúa í Akrahverfi alvarlega sem fram koma í athugasemdum og ábendingum um öryggi og flæði akandi umferðar umhverfis Akrahverfið og hefur vísað þeim t.a.m. til úrvinnslu við mótun deiliskipulags fyrir Arnarnesveg en sú deiliskipulagsvinna er farin af stað í samstarfi við Kópavogsbæ og í samráði við Vegagerðina. Fyrir liggja tillögur að umferðarbætandi aðgerðum á hringtorginu á gatnamótum Arnarnesvegar, Bæjarbrautar og Fífuhvammsvegar og stefnt er að því að ráðast í þær á þessu ári. Einnig er stefnt að því að fara í umferðarbætandi aðgerðir á Akrabraut, þar sem bætt verður við vinstribeygjuvasa, svo aðkoma bæði að Akrahverfi og matvöruverslun verði skilvirkari. Skipulagsnefnd leggur einnig til að bætt verði við ákvæði um hljóðvarnir meðfram lóðarmörkum fjölbýlishúsanna Línakurs 1 og 3 við Akrabraut. Hljóðvarnir munu einnig draga úr ljósmengun sem skapast vegna bílaumferðar um undirgöngin. Með vísan í þau atriði sem hér eru tilgreind og framlögð gögn samþykkir skipulagsnefnd tillöguna með ofangreindri breytingu í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Lögð fram greinargerð skipulagsstjóra þar sem að athugasemdum sem borist hafa er svarað lið fyrir lið. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða greinargerð.
Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsstjóri sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
3. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulagi Akrahverfis (Arnarnesland-Akrar) að lokinni auglýsingu og úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
Tillagan var í kynningu frá 28. nóvember 2024 til 20. janúar 2025 en frestur var framlengdur um 10 daga.
Lagðar fram þær athugasemdir og umsagnir sem bárust ásamt greiningum á þeim.
Skipulagsnefnd telur fulla ástæðu til að taka þær áhyggjur íbúa í Akrahverfi alvarlega sem fram koma í athugasemdum og ábendingum um öryggi og flæði akandi umferðar umhverfis Akrahverfið og hefur vísað þeim t.a.m. til úrvinnslu við mótun deiliskipulags fyrir Arnarnesveg en sú deiliskipulagsvinna er farin af stað í samstarfi við Kópavogsbæ og í samráði við Vegagerðina. Fyrir liggja tillögur að umferðarbætandi aðgerðum á hringtorginu á gatnamótum Arnarnesvegar, Bæjarbrautar og Fífuhvammsvegar og stefnt er að því að ráðast í þær á þessu ári. Einnig er stefnt að því að fara í umferðarbætandi aðgerðir á Akrabraut, þar sem bætt verður við vinstribeygjuvasa, svo aðkoma bæði að Akrahverfi og matvöruverslun verði skilvirkari.
Skipulagsnefnd leggur einnig til að bætt verði við ákvæði um hljóðvarnir meðfram lóðarmörkum fjölbýlishúsanna Línakurs 1 og 3 við Akrabraut. Hljóðvarnir munu einnig draga úr ljósmengun sem skapast vegna bílaumferðar um undirgöngin.
Með vísan í þau atriði sem hér eru tilgreind og framlögð gögn samþykkir skipulagsnefnd tillöguna með ofangreindri breytingu í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr.123/2010.
Lögð fram greinargerð skipulagsstjóra þar sem að athugasemdum sem borist hafa er svarað lið fyrir lið. Skipulagsnefnd samþykkir framlagða greinargerð.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
2. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Akralands, ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa.
Lögð fram greining á innihaldi athugasemda og umsagna.
Umhverfissviði falið að vinna drög að svörum.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
1. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Akralands að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa.
Vísað til úrvinnslu hjá Umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
Bæjarstjórn Garðabæjar
06
17. (950). fundur
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 14. nóvember 2024, varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Akra (Akrahverfis). Tillagan gerir ráð fyrir því að tenging Akrabrautar að undirgöngum undir Arnarnesveg yfir í Arnarland færist austar og fjær aðkomu að fjölbýlishúsinu við Hofakur. Lega undirganga er því í samræmi við nýja tillögu að deiliskipulagi Arnarlands sem vísað hefur verið til auglýsingar. Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr. og 1.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Bæjarráð Garðabæjar
07
43. (2144). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 14. nóvember 2024, varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Akra (Akrahverfis).
Tillagan gerir ráð fyrir því að tenging Akrabrautar að undirgöngum undir Arnarnesveg yfir í Arnarland færist austar og fjær aðkomu að fjölbýlishúsinu við Hofakur. Lega undirganga er því í samræmi við nýja tillögu að deiliskipulagi Arnarlands sem vísað hefur verið til auglýsingar.
Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr. og 1.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
15. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Akra (Akrahverfis).
Tillagan gerir ráð fyrir því að tenging Akrabrautar að undirgöngum undir Arnarnesveg yfir í Arnarland færist austar og fjær aðkomu að fjölbýlishúsinu við Hofakur. Lega undirganga er því í samræmi við nýja tillögu að deiliskipulagi Arnarlands sem vísað hefur verið til auglýsingar.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr. og 1.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.