Húsnæðisáætlun HMS - 2025
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
2. (954). fundur
Bæjarstjórn samþykkir uppfærslu húsnæðisáætlunar Garðabæjar til 10 ára í samræmi við 1. gr. reglugerðar um húsnæðisáætlun sveitarfélaga nr. 1248/2018, sbr. breyting samkvæmt reglugerð nr. 1597/2022 og lög um húsnæðismál nr. 44/1998. Afgreiðslan er samþykkt með 9 atkvæðum (BF, SHJ, MB, HBE, GVG, GS, HRG, BDG og GK). Tveir sátu hjá (ÞÞ og IA)
Bæjarráð Garðabæjar
02
5. (2153). fundur
Hrönn Hafliðadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála á umhverfissviði og Snædís Björnsdóttir, lögfræðingur á velferðarsviði mættu á fund bæjarráðs og fóru yfir húsnæðisáætlun Garðabæjar til 10 ára í samræmi við 1. gr. reglugerðar um húsnæðisáætlun sveitarfélaga nr. 1248/2018, sbr. breyting samkvæmt reglugerð nr. 1597/2022 og lögum um húsnæðismál nr. 44/1998.
Áætlunin byggir á almennum upplýsingum frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og upplýsingum frá Garðabæ sem færðar hafa verið í starfrænt áætlunarkerfi HMS.
Gerð hefur verið greining um þörf fyrir íbúðarhúsnæði í sveitarfélaginu með tilliti til mismun-andi búsetuforma. Við greininguna skal m.a. skoða framboð og eftirspurn eftir mismunandi bú-setuformum og hvort jafnvægi ríki á húsnæðismarkaði. Þá skal meta þörf fyrir húsnæði til að mæta þörfum einstakra hópa s.s. fatlaðs fólks, eldri borgara, tekju- og eignaminni og náms-manna, auk húsnæðisþarfar á almennum markaði.
Bæjarráð vísar húsnæðisáætlun Garðabæjar 2025 til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
1. fundur
Hrönn Hafliðadóttir gerði grein fyrir drögum að húsnæðisáætlun.
Velferðarráð Garðabæjar
04
1. fundur
Drög að húsnæðisáætlun Garðabæjar 2025 lögð fram til umræðu.
Drög að húsnæðisáætlun Garðabæjar 2025 lögð fram til umræðu.