Mosprýði 3 - Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
18. (951). fundur
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 28. nóvember 2024 varðandi tillögu að óverulegri breytingu deiliskipulags Garðahrauns. Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Garðahrauns sem nær til lóðarinnar Mosprýði 3.
Bæjarráð Garðabæjar
03
45. (2146). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 28. nóvember 2024 varðandi tillögu að óverulegri breytingu deiliskipulags Garðahrauns.
Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Garðahrauns sem nær til lóðarinnar Mosprýði 3.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
16. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Garðahrauns ásamt erindi frá þeim aðila sem sendi inn athugasemd. Í erindi kemur fram að athugasemd er dregin til baka.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Garðahrauns sem nær til lóðarinnar Mosprýði 3.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
15. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu Garðahrauns sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits fyrir sólskála við parhúsið Mosprýði 3 að lokinni grenndarkynningu. Ein athugasemd hefur borist og er hún lögð fram.
Fyrir mistök samþykkti skipulagsstjóri breytinguna áður en að athugasemd barst og hefur sú samþykkt verið afturkölluð.
Tillögu og athugasemd vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði.
Bæjarráð Garðabæjar
06
36. (2137). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ottó Hafliðasyni, kt. 271256-3109, leyfi fyrir byggingu sólskála að Mosprýði 3.
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
08
11. fundur
Lögð tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Garðahrauns sem vísað hefur verið til grenndarkynningar. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits um tæplega 5 m2 vegna fyrihugaðrar sólstofu. Þeir sem grenndarkynning nær til hafa með undirritun sinni staðfest að þau gera ekki athugasemdir við tillöguna. Samþykki meðeiganda parhússins liggur fyrir.
Skipulagsstjóri styttir hér með tíma grenndarkynningar í samræmi við 3.mgr.44.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og skoðast breytingartillagan því samþykkt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
10
10. fundur
Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja byggingarleyfisumsókn vegna sólskála við Mosprýði 3.
Fyrirhugaður sólskáli fer út fyrir byggingarlínu lóðar og er þar af leiðandi ekki í samræmi við skilmála uppdráttar deiliskipulags Garðahrauns. Umsóknin kallar á óverulega breytingu deiliskipulags Garðahrauns í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsstjóri vísar því umsókninni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum við Mosprýði 5 og 7 og Dalprýði 4 og 6 og Dalprýði 8 og 10. Samþykki parhúshlutans Mosprýði 1 þarf að liggja fyrir.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.