11. fundur
11. fundur
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
16.09.2024
Kl. 13:30 - 14:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Anna María Guðmundsdóttir
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri skipulagsmála
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 2407362
01
Steinprýði 15 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram aðaluppdrættir af einbýlishúsi á lóðinni Steinprýði 15. Skipulagsstjóri fundaði með hönnuðum og gerðar voru lagfæringar á tillögunni og eru framlagðir uppdrættir í samræmi við niðurstöðu þess samtals.
Útfærsla á sökkli byggingar og mótun landslags á lóð koma ágætlega til móts við markmið deiliskipulags Garðahrauns um að laga skuli byggingar að hraunmyndunum eftir því sem verða má.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt sem er í samræmi við framlögð gögn.
Málsnúmer 2407178
02
Mosprýði 3 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Garðahrauns sem vísað hefur verið til grenndarkynningar. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits um tæplega 5 m2 vegna fyrihugaðrar sólstofu. Þeir sem grenndarkynning nær til hafa með undirritun sinni staðfest að þau gera ekki athugasemdir við tillöguna. Samþykki meðeiganda parhússins liggur fyrir.
Skipulagsstjóri styttir hér með tíma grenndarkynningar í samræmi við 3.mgr.44.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og skoðast breytingartillagan því samþykkt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
Málsnúmer 2407379
03
Skerpluholt 11 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja byggingarleyfisumsókn ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti. Skipulagsstjóri ítrekar ákvæði skipulags um blágrænar ofanvatnslausnir og að hafa skuli samráð við aðliggjandi lóðarhafa um allan frágang á lóðarmörkum. Minnt er á ákvæði deiliskipulags um hæðir veggja og girðingar á lóðum.
Málsnúmer 2408458
04
skerpluholt 4 - Deiliskipulagsbreyting
Lögð fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu Hnoðraholts norður sem nær til einbýlishúslóðarinnar Skerpluholt 4 og vísað hefur verið til grenndarkynningar. Þeir aðilar sem grenndarkynning nær til hafa með áritun sinni lýst því yfir að þeir geri ekki athugasemd við tillöguna.
Tími grenndarkynningar því styttur í samræmi við 3.mgr.44.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Hnoðraholts norður.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
Málsnúmer 2405078
05
Skerpluholt 4- Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram aðaluppdrættir af einbýlishúsinu Skerpluholts 4. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemdir við uppdrættina og gerir ekki athugsemd við veitingu byggingarleyfis þegar að óveruleg deiliskipulagsbreyting vegna legu bílastæða hefur öðlast gildi.
Málsnúmer 2405512
06
Þorraholt 2-4 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram aðluppdrættir af stórhýsi á verslunar-og þjónustulóðinni Þorraholt 2-4 sem fylgja umsóknu um byggingarleyfi. Umsögn deiliskipulagshöfundar liggur fyrir.
Deiliskipulagsbreyting sem hlotið hefur skipulagsferli hefur öðlast gildi.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemdir við að byggingarleyfi verði veitt sem er í samræmi við framlagða aðaluppdrætti.
Málsnúmer 2407252
07
Þorraholt 19 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram aðaluppdrættir af fjölbýlishúsinu að Þorraholti 19 sem fylgja umsókn um byggingarleyfi. Umsögn deiliskipulagshöfundar lögð fram ásamt greinargerð hönnuðar hússins þar sem brugðist er við umsögninni.
Byggingarmagn samkvæmt uppdráttum er 26 m2 meira en deiliskipulag gerir ráð fyrir og breidd byggingar að hluta um 0,5 m meiri en deiliskipulag gerir ráð fyrir.
Skipulagsstjóri lítur svo á að ákvæði um bílastæðafjölda sé lágmarksákvæði.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað byggingarmagn og breidd húss varðar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
Málsnúmer 2408437
08
Vorbraut 27-35 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram aðaluppdrættir af raðhúslengjunni Vorbraut 27-35(29-39) sem fylgja umsókn um byggingarleyfi. Tillagan gerir ráð fyrir 6 raðhúseiningum og er í samræmi við breytingu deiliskipulags sem hefur verið samþykkt.
Umsögn deiliskipulagshöfundar lögð fram.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt sem er í samræmi við framlagða uppdrætti þegar að deiliskipulagsbreytingin hefur öðlast gildi með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda.
Málsnúmer 2408164
09
Maríugata 37 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum á lóð; skjólveggir, pallar og heitur pottur.
Skjólveggir eru að hluta til hærri en 1,5 m þá aðallega meðfram útitröppum.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað hæð á skjólvegg varðar meðfram útitröppum. Æskilegt væri að runnagróður yrði meðfram skjólveggnum þar sem hann er hærri en 1,5 m.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
Málsnúmer 2406112
10
Tinnuvellir 8A og B- Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram aðaluppdrættir af hesthúsi að Tinnuvöllum 8A og 8B sem fylgja umsókn um byggingarleyfi. Umsögn deiliskipulagshöfundar liggur fyrir.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemdir við að byggingarleyfi verði veitt sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.