Steinprýði 15 - Umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2407362
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
36. (2137). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Rögnvald Othar Erlingssyni, kt. 020257-7419, leyfi til að byggja einbýlishús á einni hæð að Steinprýði 15.
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
03
11. fundur
Lagðir fram aðaluppdrættir af einbýlishúsi á lóðinni Steinprýði 15. Skipulagsstjóri fundaði með hönnuðum og gerðar voru lagfæringar á tillögunni og eru framlagðir uppdrættir í samræmi við niðurstöðu þess samtals.
Útfærsla á sökkli byggingar og mótun landslags á lóð koma ágætlega til móts við markmið deiliskipulags Garðahrauns um að laga skuli byggingar að hraunmyndunum eftir því sem verða má.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt sem er í samræmi við framlögð gögn.