Maríugata 37 - Umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2408164
Ferill máls
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
11. fundur
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum á lóð; skjólveggir, pallar og heitur pottur.
Skjólveggir eru að hluta til hærri en 1,5 m þá aðallega meðfram útitröppum.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað hæð á skjólvegg varðar meðfram útitröppum. Æskilegt væri að runnagróður yrði meðfram skjólveggnum þar sem hann er hærri en 1,5 m.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.