Beint í efni

Þorraholt 19 - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2407252

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

12. fundur


Bæjarráð Garðabæjar

02

35. (2136). fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita ÞG Hnoðraholti ehf., kt. 660124-0470, leyfi fyrir byggingu fjölbýlishúss með 23 íbúðum að Þorraholti 19.

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra

03

11. fundur


Lagðir fram aðaluppdrættir af fjölbýlishúsinu að Þorraholti 19 sem fylgja umsókn um byggingarleyfi. Umsögn deiliskipulagshöfundar lögð fram ásamt greinargerð hönnuðar hússins þar sem brugðist er við umsögninni.
Byggingarmagn samkvæmt uppdráttum er 26 m2 meira en deiliskipulag gerir ráð fyrir og breidd byggingar að hluta um 0,5 m meiri en deiliskipulag gerir ráð fyrir.
Skipulagsstjóri lítur svo á að ákvæði um bílastæðafjölda sé lágmarksákvæði.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað byggingarmagn og breidd húss varðar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.