Beint í efni

Tillaga Garðabæjarlistans um örugg hjólastæði.

Málsnúmer 2206181

Ferill máls

Umhverfisnefnd Garðabæjar

01

4 (22-26). fundur

Vinna við greiningu á rými vegna hjólastæða við skóla og íþróttamannvirki var unnið árið 2019. Það þarf að skilgreina vel hver á að nota, hvað á að geyma, og hvernig er notkun er á þeim lausnum valin er á hverjum stað.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

9. (905). fundur

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.

„Bæjarstjórn samþykkir að fela tækni- og umhverfissviði að taka saman yfirlit yfir þá skóla og íþróttamannvirki þar sem mest þörf er fyrir öruggari hjólastæði, yfirbyggð og/eða myndavélavöktuð hjólaskýli. Fyrsti fasi í uppsetningu slíkra stæða og skýla, út frá fyrrnefndri þarfagreiningu, verði hluti fjárhagsáætlunar ársins 2023.“

Greinargerð
Líkt og annars staðar á höfuðborgarsvæðinu hefur hjólum, rafhjólum og rafhlaupahjólum í Garðabæ reglulega verið stolið þar sem þau eru geymd fyrir utan skóla og íþróttamannvirki. Brýnt er að auka veg þeirra vegfarenda sem nota virka ferðamáta og ljóst er að öruggari geymslustaðir munu hvetja fleira fólk á öllum aldri til að nýta sér þessa samgöngukosti oftar. Bæði er um að ræða lýðheilsu- og umhverfismál.

Björg Fenger, tók til máls um framkomna tillögu og lagði fram f.h. meirihlutans eftirfarandi bókun.

,,Tillaga þessi er í samræmi við áherslur bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Þá áherslu má sjá í fjárhagsáætlun undanfarinna ára þar sem 5 millj. kr. hafa verið eyrnamerktar sérstaklega í að bæta aðstöðu fyrir hjól í bænum. Í stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í maí sl. var einnig sett fram fyrirheit um að fjölga og bæta öryggi við hjólageymslur í bænum.
Lagt er til að tillögunni verði jafnframt vísað til umhverfisnefndar.“

Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögunni til tækni- og umhverfissviðs og til umfjöllunar í umhverfisnefnd.