Beint í efni

Kauptún 4, ask-breyting

Málsnúmer 2208537

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

12. (908). fundur

Bæjarstjórn samþykkir með níu atkvæðum (SHJ,AG,BF,MB,HBE,GVG,GS,GK,RNV) tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna stækkunar á lóðinni við Kauptún 4. (Mál nr. 2208537)
Ingvar Arnarson og Þorbjörg Þorvaldsdóttir, greiddu atkvæði gegn samþykkt tillögunnar.

Bæjarráð Garðabæjar

02

32. (2039). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna stækkunar á lóðinni við Kauptún 4.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

8. fundur

Skipulagsstjóri gerði grein fyrir beiðni lóðarhafa Kauptúns 4 um stækkun lóðar vegna svigrúms sem nauðsyn reynist á að hafa til aðkomu flutningabíla að fyrirhuguðu lagerrými verslunarinnar að norðanverðu. Stækka þyrfti lóð um 500 m2 og nær sú stækkun út fyrir landnotkunarreit Kauptúns 5.03 Vþ og kallar það því á breytingu aðalskipulags og deiliskipulags.
Skipulagsstjóri leggur til að tillagan verði meðhöndluð sem óveruleg aðalskipulagsbreyting í samræmi við 2.mgr.36.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 þar sem að hún hefur óverulegar breytingar á landnotkun í för með sé og hefur hvorki áhrif á stórt svæði né einstaka aðila. Þegar að aðalskipulagsbreytingin hefur verið staðfest verður unnt að leggja fram tillögu að breytingu deiliskipulags.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem óverulega breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 í samræmi við ofangreinda lagagrein og felur skipulagsstjóra að lokinni staðfestingu bæjarstjórnar að senda tillöguna til meðferðar hjá Skipulagsstofnun.