1 (22-26). fundur
1 (22-26). fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
15.06.2022
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Stella Stefánsdóttir - formaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Eiríkur Þorbjörnsson - aðalmaður
- Greta Ósk Óskarsdóttir - aðalmaður
- Eyþór Eðvarðsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda
- Linda Björk Jóhannsdóttir - garðyrkjufræðingur
Ritari
- Guðbjörg Brá Gísladóttir
Gestur fundarins: Ásta Leifsdóttir, landvörður Garðabæjar
Dagskrá
01
Loftlagsstefna Garðabæjar
Farið yfir loftlagsstefnu Garðabæjar og aðgerðaráætlun. Aðgerðaráætlun verður uppfærð við gerð fjárhagsáætlunar í haust.
02
Garðabær gegn sóun - Innkaupa- og úrgangsstefna Garðabæjar - Tillaga um að draga úr plastmengun
Staða við innleiðingu á innkaupa- og úrgangsstefnu Garðabæjar kynnt. Innleiðing er í fullum gangi.
04
Snyrtilegt umhverfi 2022
Umhverfisnefnd leggur til að óskað verði eftir ábendingum íbúa vegna snyrtilegra garða, snyrtilegra fyrirtækjalóða, snyrtileg gatna ásamt ábendingum fyrir framlag til umhverfismála.
05
Samræming úrgangsflokkunar á höfuðborgarsvæðinu
Farið yfir stöðu mála vegna samræmingar úrgangsflokkunar á höfuðborgarsvæðinu.
06
Ákall til sveitarstjórna um allt land - MENNTUN TIL SJÁLFBÆRNI.
Umhverfisnefnd leggur til stuðning við verkefnið og er sammála um að sjálfbærni sé höfð að leiðarljósi við kennslu í skólum.
07
Skjálftamælir - leyfi fyrir uppsetningu
Umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við að settur verði upp skjálftamælir á Garðaholti og fagnar verkefnum sem stuðla að minnkun á losun koldíoxíðs.