40. fundur
40. fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði
19.01.2022
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Guðfinnur Sigurvinsson - aðalmaður
- Hrönn K. Sch. Hallgrímsdóttir - aðalmaður
- Páll Magnús Pálsson - aðalmaður
- Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Linda Björk Jóhannsdóttir - garðyrkjufræðingur
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda
Ritari
- Guðbjörg Brá Gísladóttir
Dagskrá
Málsnúmer 2105560
01
Mótun loftlagsstefnu fyrir höfuðborgarsvæðið
Jón Kjartan Ágústsson svæðisskipulagsstjóri SSH kynnti stöðu á gerð loftlagsstefnu fyrir höfuðborgarsvæðið.
Málsnúmer 2101352
02
Samræming úrgangsflokkunar á höfuðborgarsvæðinu
Kynning á stöðu samræmingar úrgangsflokkunar á höfuðborgarsvæðinu. Guðbjörg Brá Gísladóttir gerði grein fyrir stöðunni.
Málsnúmer 2112041
03
Uppfærsla svæðisáætlana vegna lagabreytinga
Lagt fram.
Garðabær vinnur með sveitafélögum á höfuðborgarsvæðinu að samræmingu úrgangsflokkunar á höfuðborgarsvæðinu og tekur sú vinna tillit til lagabreytinga sem gerðar voru á lögum um meðhöndlun úrgangs og koma til framkvæmda 1. janúar 2023.
Málsnúmer 1911396
04
Loftlagsstefna Garðabæjar
Loftlagsstefna Garðabæjar var samþykkt í bæjarstjórn 16 desember síðastliðin. Stefnan verður sett inn á vef Garðabæjar þegar uppsetningu er lokið.