Menningardagskrá fyrir skólahópa 21/22
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
37. fundur
Menningarfulltrúi sagði frá dagskrá sem fyrirhuguð er á vorönn 2022 fyrir skólahópa. Ýmsar breytingar hefur þurft að gera á kynntri dagskrá í vetur vegna covid19 - samkomutakmarkana og ýmsar breytingar eru í vinnslu nú á vorönn vegna fyrirliggjandi takmarkana. Áfram er stefnt er að fjölbreyttri Barnamenningarhátíð í Garðabæ 4.- 9. apríl.
Fylgiskjöl
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
36. fundur
Menningarfulltrúi sagði frá menningardagskrá fyrir skólahópa á vorönn og haustönn 2021 en þrátt fyrir heimsfaraldur hefur mikill fjöldi skólahópa og barna notið dagskrár á Hönnunarsafni Íslands, Tónlistarskóla Garðabæjar, Bókasafni Garðabæjar og á Barnamenningarhátíð Garðabæjar 2021. Menningarfulltrúi þakkaði skólastjórnendum og kennurum fyrir frábærar viðtökur og afar gott samstarf sem hefur leitt til geysimikillar þátttöku skólahópa í menningardagskránni í ár.
Menningarfulltrúi tilkynnti að fyrirhuguðum tónleikum grunn- og miðstigsnemenda í grunnskólum bæjarins nú í nóvember hafi verið festað um óákveðinn tíma vegna samkomutakmarkana.
Farið var yfir áform um menningardagskrá fyrir skólahópa í Garðabæ á vorönn 2022 þar sem m.a. verður á dagskrá Barnamenningarhátíðar verkefni tengt minjagarðinum á Hofsstöðum sem fengið hefur styrk frá Þjóðræknifélagi Íslendinga.