Beint í efni

Aðventuhátíð Garðabæjar

Málsnúmer 2111209

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

51. fundur

Laugardaginn 2. desember fer fram Aðventuhátíð á Garðatorgi, viðburðir og föndur á Bókasafni Garðabæjar, Hönnunarsafni Íslands og á Garðatorgi 1-4 þar sem aðventumarkaður fer fram. Jólaball með jólasveinum á Garðatorgi 7 markar lok aðventuhátíðar.Kveikt verður á jólatré Garðabæjar daginn áður með leikskólabörnum, jólasveinum og bæjarstjóra samkvæmt hefð sem skapast hefur frá því á Covidtímum.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

44. fundur

Menningarfulltrúi kynnti fyrirhugaða dagskrá í upphafi aðventu, laugardaginn 26. nóvember. Fjölbreytt og innihaldsrík dagskrá verður í boði fyrir alla fjölskylduna í menningarstofnunum bæjarins og á Garðatorgi.

Fylgiskjöl

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

03

36. fundur

Aðventuhátíð aflýst

Aðventuhátíð Garðabæjar sem menningar- og safnanefnd hafði boðið fjölskyldum í Garðabæ til á Garðatorgi þann 27. nóvember 2021 í samvinnu við Hönnunarsafn Íslands og Bókasafn Garðabæjar hefur verið aflýst vegna samkomutakmarkana. Menningarfulltrúi mun nú leita annarra leiða til að veita börnum í Garðabæ tækifæri til að fagna upphafi aðventu í ár. Til skoðunar er að fá leikskólabörn til að tendra ljósin á jólatré Garðabæjar og að gera þeim dagamun með einhverjum hætti í kjölfarið.

Fylgiskjöl