Beint í efni

51. fundur

09.10.2023
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

51. fundur

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi

09.10.2023

Kl. 16:30 - 18:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Guðfinnur Sigurvinsson - formaður
  • Guðrún Arna Sturludóttir - aðalmaður
  • Torfi Geir Símonarson - aðalmaður
  • Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
  • Svanur Þorvaldsson - varamaður

Starfsmenn

  • Ólöf Hulda Breiðfjörð - menningarfulltrúi
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs

Ritari

  • Ólöf Breiðfjörð

Dagskrá

Málsnúmer 1604150

01

Kynning á Urriðaholtssafni

Margrét Berndsen Sigurgeirsdóttir forstöðumaður Bókasafns Garðabæjar og Ásbjörg Una Björnsdóttir útibústjóri Urriðaholtssafns kynntu áskoranir sem bókasafn í opnu rými stendur frammi fyrir. Framtíðar starfssemi og staðsetning safnsins rædd.

Málsnúmer 2309037

02

Rökkvan listahátíð 2023

Hvernig tókst til?

Rætt um listahátíðina Rökkvuna sem var í alla staði vel heppnuð. Gestir voru almennt mjög ánægðir með tónlistaratriði sem og alla umgjörð hátíðarinnar sem var skipulögð af ungu tónlistarfólki í Garðabæ.

Málsnúmer 2310126

03

Styrkumsóknir-menningarmál

Samþykkt að veita styrk fyrir tónleikunum Mozart við kertaljós sem haldin verður í 30. sinn.

Málsnúmer 2111209

04

Aðventuhátíð Garðabæjar

Laugardaginn 2. desember fer fram Aðventuhátíð á Garðatorgi, viðburðir og föndur á Bókasafni Garðabæjar, Hönnunarsafni Íslands og á Garðatorgi 1-4 þar sem aðventumarkaður fer fram. Jólaball með jólasveinum á Garðatorgi 7 markar lok aðventuhátíðar.Kveikt verður á jólatré Garðabæjar daginn áður með leikskólabörnum, jólasveinum og bæjarstjóra samkvæmt hefð sem skapast hefur frá því á Covidtímum.

Málsnúmer 2310128

05

Leiksýningin Ef ég gleymi

Fræðsluleikritið Ef ég gleymi eftir Sigrúnu Waage sem hlaut styrk verður flutt þann 29. október kl. 12 í samkomusal Vídalínskirkju. Sýningin fer fram í kjölfar messu þar sem sr. Jóna Hrönn þjónar fyrir altari. Umræður um alzheimer og aðrar tegundir heilabilunar fara fram að sýningu lokinni.

Málsnúmer 2012072

06

Gróska, endurnýjun samnings

Staða endurnýjunar samnings rædd en menningarfulltrúa falið áframhaldandi vinna í málinu.