Beint í efni

Rökkvan listahátíð 2023

Málsnúmer 2309037

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

51. fundur

Hvernig tókst til?

Rætt um listahátíðina Rökkvuna sem var í alla staði vel heppnuð. Gestir voru almennt mjög ánægðir með tónlistaratriði sem og alla umgjörð hátíðarinnar sem var skipulögð af ungu tónlistarfólki í Garðabæ.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

50. fundur

Kynning á dagskrá Rökkvunnar.

Einar Örn Magnússon og Guðrún Ágústa Gunnarsdóttir stigu á fund og sögðu frá dagskrá Rökkvunnar sem fer fram 29. og 30. september næstkomandi. Fjöldi ungra tónlistarmanna koma fram á stóra sviðinu og á Rökkvukránni og auk þess verður markaður ungra hönnuða og listamanna staðsettur á Garðatorgi. Á stóra sviði koma einnig fram sveitirnar Moses Hightower og Dikta. Ungir tónlistarmenn í Garðabæ unnu að skipulagningu hátíðarinnar í sumarstarfi
í Skapandi sumarstörfum í félagi við menningarfulltrúa bæjarins. Kynningin bar því vitni að hópurinn hefur skipulagt dagskrá á stóra sviði, á göngugötu og í Rökkvukránni af nákvæmni og innan fjárhagsramma.

Fylgiskjöl