50. fundur
50. fundur
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi
04.09.2023
Kl. 16:30 - 17:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Guðfinnur Sigurvinsson - formaður
- Guðrún Arna Sturludóttir - aðalmaður
- Torfi Geir Símonarson - aðalmaður
- Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
- Einar Örn Ævarsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Ólöf Hulda Breiðfjörð - menningarfulltrúi
Ritari
- Ólöf Breiðfjörð
Dagskrá
Málsnúmer 2309038
01
Starfsáætlun menningar- og safnanefndar 23/24
Starfsáætlun menningar- og safnanefndar fyrir starfsárið 23/24 samþykkt.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2309035
02
Menning í Garðabæ haust 2023
Menningarfulltrúi kynnti menningardagskrá fyrir almenning haustið 2023. Bæklingur liggur frammi í menningarstofnunum bæjarins og í þjónustuveri en verður borinn í hús þann 7. september. Í bæklingi eru fjölskyldustundir á Bókasafni og Hönnunarsafni kynntar, erindi og fróðleiksmolar, bókmenntakynningar og leiðsagnir sömuleiðis. Þá er dagskrá tónleikaraðarinnar Tónlistarnæring kynnt og hátíðirnar Rökkvan og aðventuhátíð Garðabæjar sömuleiðis.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2309036
03
menningardagskrá fyrir skólahópa vetur 23/24
Drög að dagskrá fyrir skólahópa kynnt. Skipulögð dagskrá fer fram í Hönnunarsafni, Bókasafni Garðabæjar og í Tónlistarskóla Garðabæjar auk þess sem Minjagarðurinn á HOfsstöðum og margmiðlunarsýningin Aftur til Hofsstaða ásamt vefsíðunni www.afturtilhofsstada.is er kynnt kennurum og skólastjórnendum í upphafi hausts.
Málsnúmer 2309037
04
Rökkvan listahátíð 2023
Kynning á dagskrá Rökkvunnar.
Einar Örn Magnússon og Guðrún Ágústa Gunnarsdóttir stigu á fund og sögðu frá dagskrá Rökkvunnar sem fer fram 29. og 30. september næstkomandi. Fjöldi ungra tónlistarmanna koma fram á stóra sviðinu og á Rökkvukránni og auk þess verður markaður ungra hönnuða og listamanna staðsettur á Garðatorgi. Á stóra sviði koma einnig fram sveitirnar Moses Hightower og Dikta. Ungir tónlistarmenn í Garðabæ unnu að skipulagningu hátíðarinnar í sumarstarfi
í Skapandi sumarstörfum í félagi við menningarfulltrúa bæjarins. Kynningin bar því vitni að hópurinn hefur skipulagt dagskrá á stóra sviði, á göngugötu og í Rökkvukránni af nákvæmni og innan fjárhagsramma.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2309040
05
Skapandi sumarstörf
Hvernig tókst til?
Starfsmenn Skapandi sumarstarfa voru að þessu sinni 17 auk verkefnastjóra og aðstoðarverkefnastjóra. Á viðburði í lok júlí voru mjög fjölbreytt verkefni kynnt og ljóst að um metnaðarfulla vinnu hjá ungu listafólki í Garðabær var að ræða. Hluti hópsins vann að skipulagi Rökkvunnar í sumar auk þess sem hópurinn lék á tvennum tónleikum.