Tónlistarveisla í skammdeginu með GDRN frestað
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
36. fundur
Vegna samkomutakmarkana verður ekki mögulegt að halda tónleika á Garðatorgi undir merkjum Tónlistarveislu í skammdeginu eins og fyrirhugað var þann 18. nóvember 2021. Söngkonan GDRN ásamt hljómsveit ætlaði að koma fram en viðburðurinn bíður þangað til heimildir til samkomuhalds verða rýmkaðar á ný.
Fylgiskjöl
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
24. fundur
Fyrirhugað er að halda jazztónleika dagana 12.-15. nóvember þar sem m.a. yrðu tónleikar í Hönnunarsafni Íslands, í Kirkjuhvoli og Jónshúsi. Klassískir tónlistarmenn kæmu fram í Kirkjuhvoli t.d. bæjarlistamaður Bjarni Thor Kristinsson sem mundi flytja dagskrá og segja frá ferli sínum. Auk þess væri eðlilegt að stefna að einum tónleikum með hljóðfæraleikurum og einum með popptónlistarmönnum.