Fundargerð bæjarráðs frá 28/9 ´21.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
13. (891). fundur
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 1. tl., svar við fyrirspurn Garðabæjarlistans um almenningssamgöngur í Urriðaholti. Harpa fór fram á að bókun Söru Daggar verði færð í fundargerð bæjarstjórnar.
"Garðabæjarlistinn fagnar þeirri ákvörðun að stórauka skuli þjónustu við íbúa Urriðaholts með aukinni tíðni strætóferða til og frá hverfi líkt og við í Garðabæjarlistanum höfum ítrekað talað fyrir og lagt til. Aukin þjónusta mun ekki síst hafa mikil áhrif á þjónustu við börn og ungmenni sem við fögnum mjög."
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., viðhald og endurnýjun götulýsingar.
Gunnar Einarsson, ræddi 1. tl., svar við fyrirspurn Garðabæjarlistans um almenningssamgöngur í Urriðaholti.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 14. tl., ósk Garðabæjarlistans um minnisblað um stöðu innleiðingar innkaupa og úrgangsstefnu Garðabæjar.
Baldur Ólafur Svavarsson, ræddi 1. tl., svar við fyrirspurn Garðabæjarlistans um almenningssamgöngur í Urriðaholti.
Fundargerðin sem er 14 tl. er samþykkt samhljóða.