Beint í efni

7. fundur

17.07.2019
Fjölskylduráð Garðabæjar

7. fundur

Fjölskylduráð Garðabæjar

í ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

17.07.2019

Kl. 16:00 -

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Almar Guðmundsson - formaður
  • Bjarni Theódór Bjarnason - aðalmaður
  • Bryndís Björk Ásgeirsdóttir - aðalmaður
  • Guðfinna Eyrún Ingjaldsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi

Ritari

  • Hildigunnur Árnadóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1905120

01

Umsókn um fjárhagsaðstoð

Umsókn um námsstyrk skv. 21.gr reglna um fjárhagsaðstoð hjá Garðabæ lögð fyrir fjölskylduráð.

Mál 1905120, umsókn um námsstyrk á grundvelli 21. gr. reglna um fjárhagsaðstoð hjá Garðabæ, lögð fram til afgreiðslu. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundarins.

Málsnúmer 1904211

02

Reglur um NPA

Drög að reglum um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fatlað fólk í Garðabæ lögð fram til kynningar.

Mál nr. 1904211, drög að reglum um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fatlað fólk í Garðabæ, lögð fram til kynningar. Drögin voru rædd og starfsmönnum falið að leggja lokahönd á vinnuna og upplýsa fjölskylduráð um framvinduna. Drögin verða lögð fram á næsta fundi samráðshóps um málefni fatlaðs fólks.

Málsnúmer 1907066

03

Beiðni um samstarf vegna notkunnar málavogar í barnavernd

Beiðni um samstarf við Barnaverndarstofu vegna notkunnar á málavog, en málavoginni er ætlað að mæla fjölda og þyngd mála sem til vinnslu eru í barnavernd og er einn þáttur í að meta álag í málavinnslu.

Mál nr. 1907066, beiðni um samstarf vegna notkunnar málavogar í barnavernd, lögð fram til afgreiðslu. Beiðnin vísar til þingsályktunartillögu um framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar 2019-2020. Í F hluta áætlunarinnar er fjallað um bætt verklag í barnavernd og mikilvægi þess að meta vinnuálag starfsfólks í barnavernd. Er málavoginni ætlað að meta vinnuálag og málafjölda með kerfisbundnum hætti, að minnsta kosti á þriggja mánaða fresti. Árið 2020 á að fara fram könnun á notkun málavogarinnar, niðurstöðum úr mælingum og viðbrögðum barnaverndarnefnda við þeim niðurstöðum.

Farið hefur fram ein mæling af þessu tagi í maí sl., önnur mæling er áætluð í september 2019.

Fjölskylduráð telur að þessi beiðni falli vel að framkvæmdaáætlun Garðabæjar á sviði barnaverndar árin 2018-2022, en þar kemur fram mikilvægi markvissrar vinnu í málefnum barna á grundvelli barnaverndarlaga og vikið að mikilvægi fullnægjandi mönnunar í barnaverndarstarfi svo unnt sé að sinna skyldum sveitarfélagsins. Sviðsstjóri fjölskyldusviðs mun upplýsa ráðið um framvinduna.