Beint í efni

Beiðni um samstarf vegna notkunnar málavogar í barnavernd

Málsnúmer 1907066

Ferill máls

Fjölskylduráð Garðabæjar

01

7. fundur

Beiðni um samstarf við Barnaverndarstofu vegna notkunnar á málavog, en málavoginni er ætlað að mæla fjölda og þyngd mála sem til vinnslu eru í barnavernd og er einn þáttur í að meta álag í málavinnslu.

Mál nr. 1907066, beiðni um samstarf vegna notkunnar málavogar í barnavernd, lögð fram til afgreiðslu. Beiðnin vísar til þingsályktunartillögu um framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar 2019-2020. Í F hluta áætlunarinnar er fjallað um bætt verklag í barnavernd og mikilvægi þess að meta vinnuálag starfsfólks í barnavernd. Er málavoginni ætlað að meta vinnuálag og málafjölda með kerfisbundnum hætti, að minnsta kosti á þriggja mánaða fresti. Árið 2020 á að fara fram könnun á notkun málavogarinnar, niðurstöðum úr mælingum og viðbrögðum barnaverndarnefnda við þeim niðurstöðum.

Farið hefur fram ein mæling af þessu tagi í maí sl., önnur mæling er áætluð í september 2019.

Fjölskylduráð telur að þessi beiðni falli vel að framkvæmdaáætlun Garðabæjar á sviði barnaverndar árin 2018-2022, en þar kemur fram mikilvægi markvissrar vinnu í málefnum barna á grundvelli barnaverndarlaga og vikið að mikilvægi fullnægjandi mönnunar í barnaverndarstarfi svo unnt sé að sinna skyldum sveitarfélagsins. Sviðsstjóri fjölskyldusviðs mun upplýsa ráðið um framvinduna.