Beint í efni

10. fundur

21.10.2020
Fjölskylduráð Garðabæjar

10. fundur

Fjölskylduráð Garðabæjar

í ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

21.10.2020

Kl. 16:00 -

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Almar Guðmundsson - formaður
  • Bjarni Theódór Bjarnason - aðalmaður
  • Sigþrúður Ármann - aðalmaður
  • Bryndís Björk Ásgeirsdóttir - aðalmaður
  • Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi
  • Snædís Björnsdóttir - verkefnastjóri

Ritari

  • Hildigunnur Árnadóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2005424

01

Starfshópur - að tryggja eftirfylgni með stöðu barna e-COVID 19

Fjölskylduráð hefur óskað eftir upplýsingum frá starfshópi sem tryggir eftirfylgni með stöðu barna vegna COVID 19. Farið verður yfir þau gögn sem starfshópurinn hefur aflað sem og tillögur starfshópsins um á hvaða hátt er hægt að styðja við börn og fjölskyldur í ljósi þessa heimsfaraldurs.

Mál nr. 2005424 lagt fram, eftirfylgni með stöðu barna vegna COVID 19. Hildigunnur Árnadóttir fer yfir þau gögn sem fyrir liggja um stöðu barna og þær aðgerðir sem þegar hefur verið farið í og tillögur að mikilvægum skrefum. Fjölskylduráð lýsir yfir ánægju sinni með vinnu starfshópsins, leggur áherslu á hann starfi áfram og veiti upplýsingar um stöðu mála til bæjarráðs og þeirra nefnda á vegum bæjarins sem fara með málefni barna í Garðabæ.

Málsnúmer 2009546

02

Beiðni um úttekt á stuðningsfjölskyldu

Greinargerð um úttekt á stuðningsfjölskyldu lögð fram í Fjölskylduráði til afgreiðslu.

Mál nr. 2009546 lagt fram, beiðni um úttekt á stuðningsfjölskyldu. Mælir fjölskylduráð Garðabæjar með útgáfu stuðningsfjölskylduleyfis til umsækjenda. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundarins.

Málsnúmer 2009283

03

Beiðni um úttekt á stuðningsfjölskyldu í barnavernd

Greinargerð um úttekt á stuðningsfjölskyldu lögð fram í Fjölskylduráði til afgreiðslu.

Tekið er fyrir mál nr. 2007267, beiðni Keðjunnar hjá Reykjavíkurborg um úttekt vegna umsóknar um leyfi til að gerast stuðningsfjölskylda. Fyrir liggur greinargerð ráðgjafa í barnavernd. Mælir fjölskylduráð Garðabæjar með útgáfu stuðningsfjölskylduleyfis til umsækjenda. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundarins.

Málsnúmer 1911163

04

Lýðræðisstefna Garðabæjar- endurskoðun

Lýðræðisstefna Garðabæjar, framvinda og tímalína.

Mál nr. 1911163, Lýðræðisstefna Garðabæjar, lagt fram til umræðu. Farið var yfir stöðu málsins, framvindu þess og gerð grein fyrir fyrirhugaðri tímalínu.