Holtsvegur 20 - Umsókn um byggingarleyfi.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
29. (2082). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að veita umhverfissviði Garðabæjar, kt. 570169-6109, leyfi fyrir stækkun á þegar samþykktri leikskólabyggingu við Holtsveg 20. Með stækkuninni verður byggingin tvær hæðir að hluta. Á neðri hæð leikskólans verða heimastofur, fjölnotasalur og önnur aðstaða fyrir leikskólabörn. Á eftir hæð verða skrifstofur, vinnustofur stjórnenda og kennara og almenn starfsmannaaðstaða.
Byggingarleyfið er samþykkt á grundvelli deiliskipulags sem gildir fyrir 1. áfanga norðurhluta Urriðaholts og tillögu að breytingum á skilmálum deiliskipulagsins sem samþykkt var í bæjarstjórn Garðabæjar 15. júní 2023 og staðfest með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda nr. 753/2023.
Bæjarráð Garðabæjar
02
1. (2054). fundur
Sviðsstjóri umhverfissviðs og skipulagsstjóri gerðu grein fyrir breyttum teikningum af byggingu leikskólans og deiliskipulagsskilmálum lóðarinnar.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita umhverfissviði Garðabæjar leyfi til að byggja fimm deilda leikskóla að Holtsvegi 20. Leyfið kemur í stað áður útgefins leyfis fyrir byggingu sex deilda leikskóla sem var fellt úr gildi með úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 16. desember 2022.
Í leyfinu felst sú breyting að gert er ráð fyrir að leikskólinn verði fimm deilda í stað sex deilda og einnar hæðar en samkvæmt fyrra leyfi var hluti byggingarinnar tvær hæðir.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
03
6. (2013). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita tækni- og umhverfissviði leyfi til að byggja sex deilda leikskóla að Holtsvegi 20.