29. (2082). fundur
29. (2082). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
01.08.2023
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
- Guðfinnur Sigurvinsson - varamaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - varaáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 2306249
01
Hraunhólar 5 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að veita Páli Þóri Jónssyni, kt. 280675-4669, leyfi fyrir byggingu garðskála á lóðinni við Hraunhóla 5.
Málsnúmer 2110244
02
Holtsvegur 20 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að veita umhverfissviði Garðabæjar, kt. 570169-6109, leyfi fyrir stækkun á þegar samþykktri leikskólabyggingu við Holtsveg 20. Með stækkuninni verður byggingin tvær hæðir að hluta. Á neðri hæð leikskólans verða heimastofur, fjölnotasalur og önnur aðstaða fyrir leikskólabörn. Á eftir hæð verða skrifstofur, vinnustofur stjórnenda og kennara og almenn starfsmannaaðstaða.
Byggingarleyfið er samþykkt á grundvelli deiliskipulags sem gildir fyrir 1. áfanga norðurhluta Urriðaholts og tillögu að breytingum á skilmálum deiliskipulagsins sem samþykkt var í bæjarstjórn Garðabæjar 15. júní 2023 og staðfest með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda nr. 753/2023.
Málsnúmer 2304477
03
Staða úthlutunar og sölu byggingarréttar lóða á Hnoðraholti.
Lagt fram yfirlit yfir tilboð sem hafa verið staðfest og tilboðsgjafar hafa uppfyllt skilyrði úthlutunar- og söluskilmála.
Í þeim tilvikum sem tilboðsgjafar sem eiga hæsta tilboð hafa ekki uppfyllt skilyrði úthlutunar- og söluskilmála mun bæjarstjóri á grundvelli umboðs bæjarráðs frá fundi 11. júlí sl. samþykkja tilboð frá þeim aðilum sem næstir eru í röðinni hvað varðar tilboðsverð með fyrirvara um uppfyllt séu skilyrði í úthlutunar- og söluskilmálum.
Málsnúmer 2307387
04
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tímabundið áfengisleyfi í Stjörnuheimilinu
Lögð fram umsókn Ungmennafélagsins Stjörnunnar, kt. 611175-0199, um tímabundið áfengisleyfi í Stjörnuheimilinu við Ásgarð, dagana 24.-26. ágúst 2023.
Bæjarráð leggur til að leyfið verði veitt til kl. 23:00 en ekki 01:00 eins og fram kemur í umsókninni. Að öðru leyti gerir bæjarráð ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
Málsnúmer 2307381
05
Tilkynning frá innviðaráðuneytinu varðandi birtingu grænbókar um skipulagsmál í samráðsgátt stjórnvalda.
Í tilkynningunni kemur fram að grænbók um skipulagsmál sem er liður í endurskoðun á landsskipulagsstefnu 2015-2026 hafi verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Grænbókin verður í opnu samráðsferli í samráðsgátt til og með 24. ágúst 2023.
Málsnúmer 2301318
06
Fundargerð stjórnar SSH frá 19/7'23.
Fundargerðin er lögð fram og rædd.
Málsnúmer 2301453
07
Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 7/7'23.
Fundargerðin er lögð fram og rædd.