Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna efnisflutninga.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
18. (877). fundur
"Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að veita Urriðaholti ehf. og Styrktar- og líknarsjóði Oddfellowa leyfi til framkvæmda samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna losunar á 49.300 m3 jarðefnis af byggingarsvæði í Urriðaholti á svæði í norðvesturhorni golfvallar." (Mál nr. 2010116)
Bæjarráð Garðabæjar
02
47. (1955). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að veita Urriðaholti ehf. og Styrktar- og líknarsjóði Oddfellowa leyfi til framkvæmda samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna losunar á 49.300 m3 jarðefnis af byggingarsvæði í Urriðaholti á svæði í norðvesturhorni golfvallar.
Fyrir liggur jákvæð afstaða umhverfisnefndar til málsins.
Fylgiskjöl
Umhverfisnefnd Garðabæjar
03
27. fundur
Lögð fram umsókn Urriðaholts ehf og Styrktar- og líknarsjóðs Oddfellowa um framkvæmdaleyfi fyrir losun 49.500 m3 jarðefnis úr Urriðaholti á svæði í norðvesturhorni golfvallarsvæðis. Umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við þessa efnisflutninga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
11. fundur
Lögð fram umsókn Urriðaholts ehf og Styrktar- og líknarsjóðs Oddfellowa um framkvæmdaleyfi fyrir losun 49.500 m3 jarðefnis úr Urriðaholti á svæði í norðvesturhorni golfvallarsvæðis.
Með vísan í 13. grein skipulagslaga og framlögð gögn veitir skipulagsnefnd framkvæmdaleyfi.
Bæjarráð Garðabæjar
05
40. (1948). fundur
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar og umhverfisnefndar.