Beint í efni

18. (877). fundur

03.12.2020
Bæjarstjórn Garðabæjar

18. (877). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði

03.12.2020

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigurður Guðmundsson
  • Áslaug Hulda Jónsdóttir
  • Gunnar Valur Gíslason
  • Jóna Sæmundsdóttir
  • Almar Guðmundsson
  • Björg Fenger
  • Gunnar Einarsson
  • Guðfinnur Sigurvinsson
  • Sara Dögg Svanhildardóttir
  • Ingvar Arnarson
  • Harpa Þorsteinsdóttir

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði samkvæmt heimild í VI. bráðabirgðaákvæði við sveitarstjórnarlög nr. 138/2011, sbr. lög nr. 18/2020, sbr. auglýsingu samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra nr. 1076/2020 og samþykkt bæjarstjórnar frá 19. nóvember 2020.

Fundurinn er hljóðritaður.

Sigurður Guðmundsson, forseti bæjarstjórar setti fund og stjórnaði.

Fundargerð bæjarstjórnar frá 19. nóvember 2020 er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 2011370

01

Tillaga um að streyma fjarfundum bæjarstjórnar.

Lögð fram eftirfarandi tillaga

"Bæjarstjórn samþykkir að fundum bæjarstjórnar sem haldnir eru með fjarfundarbúnaði verði streymt beint."

Tillagan samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2011032F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 24/11 ´20.

Fundargerðin sem er 23 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2011044F

03

Fundargerð bæjarráðs frá 1/12 ´20.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 2. tl., stöðumat starfshóps sem skipaður var til að tryggja eftirfylgni með stöðu barna í COVID-19 og 15. tl., gerðardóm í deilumáli ÍAV og Garðabæjar um grundunaraðstæður fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri. Sara lagði fram eftirfarandi bókun:

"Við í Garðabæjarlistanum höfum frá upphafi haft áhyggjur af því að ÍAV myndi reyna að sækja á Garðabæ vegna grundunar og undirstöðu hússins. Þessar áhyggjur voru ræddar við meirihlutann áður en samningar voru undirritaðir í desember 2018. Þá var okkur tjáð að það þyrfti ekki að hafa miklar áhyggjur af þessu, verkið væri í alútboði og hús hafi oft áður verið reist í mýri á súlum. Annað hefur nú komið á daginn. Eftir að deilan fór í þennan farveg höfum við í Garðabæjarlistanum haft efasemdir um að Garðabær væri í fullum rétti gagnvart kröfu ÍAV verktaka. Rök bæjarstjóra um að mýri væri bara mýri héldu því miður ekki að okkar mati.

En um það snerist deilan eins og allir vita. Það var deilt um hvort grunnupplýsingar í útboðslýsingu hefðu verið fullnægjandi og svo var ekki. Og ábyrgðin er alfarið á hendi Garðabæjar að uppfylla þær kröfur þegar jarðvegur undir byggingu á í hlut. Og er það ámælisvert að okkar mati hversu óábyrgt hefur verið gengið fram í þeim efnum.

Rannsókn var hafin fyrir margt löngu á jarðvegi en aldrei kláruð. Hitt sem síðan sömuleiðis er ámælisvert er að ekki hafði verið gengið frá deiliskipulagi þegar ákvörðun um staðsetningu byggingar var tekin. Það er rekið í gerðardómnum sömuleiðis.

Hér höfum við enn eitt dæmið um galla á opinberum innkaupum sveitarfélaga.

Niðurstaðan er áfellisdómur fyrir sjálfstæðismenn í meirihluta bæjarstjórnar Garðabæjar. Hér fara ákvarðanir og allt tal um ábyrga fjármálastjórn því miður ekki saman. Það gengur ekki að farið sé með skattfé íbúa ítrekað í málaferli. Næg eru verkefnin fyrir sem skortir fjármagn."

Gunnar Einarsson, ræddi 2. tl., stöðumat starfshóps sem skipaður var til að tryggja eftirfylgni með stöðu barna í COVID-19 og 15. tl., gerðardóm í deilumáli ÍAV og Garðabæjar um grundunaraðstæður fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri. Gunnar lagði fram eftirfarandi bókun:

"Framkvæmdir við fjölnota íþróttahúsið sem nú er að rísa í Vetrarmýri hafa gengið vel í haust eftir að verkið hófst á ný í lok sumars. Um tíma lágu framkvæmdir niðri vegna ágreinings Garðabæjar og Íslenskra aðalverktaka um kostnað við grundun hússins.

Í sumar var gert samkomulag um úrlausn ágreinings og gerðardómsmeðferð eftir viðræður og sáttaferli milli Garðabæjar og ÍAV. Með samkomulaginu var tryggt að verkið gæti haldið áfram þar til niðurstaða um úrlausn málsins lægi fyrir. Málsaðilar voru sammála um að fjárhæð sú sem færi fyrir gerðardóm næmi um 200 mkr. Gerðardómur kom saman í haust og í niðurstöðum dómsins sem birtur var aðilum 23. nóvember sl. fellur um 166 mkr viðbótarkostnaður í hlut Garðabæjar og um 35 mkr á ÍAV.

Í niðurstöðu gerðardóms segir að ekki er talinn vafi á að mannvirkið þoli hugsanlegar grunnvatnsbreytingar á svæðinu umhverfis íþróttahúsið í framtíðinni en að upphafleg lausn hefði ekki uppfyllt það skilyrði jafn vel. Dómurinn telur að í því felist verðmæti fyrir Garðabæ við framtíðaruppbyggingu nærliggjandi svæðis. Fyrir vikið fá Garðbæingar enn betra mannvirki sem mun um langt skeið nýtast vel fyrir þá íþróttastarfsemi og heilsueflingu sem verður starfrækt í húsinu og mun skapa bæjarbúum margvísleg tækifæri til heilsubótar um áratuga skeið.

Minnihlutinn í bæjarstjórn gerði engar athugasemdir á neinu stigi málsins um þær faglegu forsendur sem lágu til grundvallar samningum við ÍAV og síðari viðauka við þá. Þegar ágreiningur kom upp milli Garðabæjar og Íslenskra aðalverktaka um kostnað við grundun hússins lagði minnihlutinn til að ekki yrði farin sáttaleið heldur yrði ÍAV stefnt fyrir vanefndir. Það hefði þýtt að bjóða yrði verkið út aftur með óvissu um hvaða tilboð kæmi, tafir og 2-3 ára dómsmál. Meirihluti bæjarstjórnar mat það svo að slík vegferð myndi kosta bæjarfélagið mun meira bæði fjárhagslega og í óásættanlegum töfum á nýtingu mannvirkisins."

Ingvar Arnarson, ræddi 15. tl., gerðardóm í deilumáli ÍAV og Garðabæjar um grundunaraðstæður fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri, 13. tl., fyrirspurn Garðabæjarlistans um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Ingvar lagði til að svörin verði lögð fram í fjölskylduráði og samráðshópi um málefni fatlaðs fólks.

Almar Guðmundsson, ræddi 15. tl., gerðardóm í deilumáli ÍAV og Garðabæjar um grundunaraðstæður fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri,

Björg Fenger, ræddi 15 tl., gerðardóm í deilumáli ÍAV og Garðabæjar um grundunaraðstæður fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 15. tl., gerðardóm í deilumáli ÍAV og Garðabæjar um grundunaraðstæður fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri.

Ingvar Arnarson, ræddi 15. tl., gerðardóm í deilumáli ÍAV og Garðabæjar um grundunaraðstæður fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 15. tl., gerðardóm í deilumáli ÍAV og Garðabæjar um grundunaraðstæður fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri.

Gunnar Einarsson, ræddi 15. tl., gerðardóm í deilumáli ÍAV og Garðabæjar um grundunaraðstæður fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri,

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 15. tl., gerðardóm í deilumáli ÍAV og Garðabæjar um grundunaraðstæður fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri,

Almar Guðmundsson, ræddi 15. tl., gerðardóm í deilumáli ÍAV og Garðabæjar um grundunaraðstæður fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri.

Fundargerðin sem er 21 tl. er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.

Málsnúmer 2011026F

04

Fundargerð fjölskylduráðs frá 18/11 ´20.

Almar Guðmundsson, ræddi 5. tl., íþrótta- og tómstundastyrki til lágtekjuheimila og 6. tl., tölulegar upplýsingar og rannsóknir í barnavernd og fjárhagsaðstoð.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2011029F

05

Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 20/11 ´20.

Björg Fenger, ræddi 2. tl., íþrótta- og tómstundastyrki til lágtekjuheimila og 3. tl., íþróttahátíð 2020, 4. tl. endurnýjun forvarnarstefnu og 7. tl., stöðumat starfshóps sem skipaður var til að tryggja eftirfylgni með stöðu barna í COVID-19.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 7. tl., stöðumat starfshóps sem skipaður var til að tryggja eftirfylgni með stöðu barna í COVID-19.

Björg Fenger, ræddi 7. tl., stöðumat starfshóps sem skipaður var til að tryggja eftirfylgni með stöðu barna í COVID-19.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2011019F

06

Fundargerð leikskólanefndar frá 18/11 ´20.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., starfsáætlanir leikskóla 2020-2021. Þá ítrekaði Sara Dögg fyrirspurn sína frá síðasta bæjarstjórnarfundi um umbun til starfsmanna.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., starfsáætlanir leikskóla 2020-2021. Áslaug Hulda sagði frá því að dómnefnd vegna samkeppni um hönnun nýs leikskóla í Urriðaholti hefur tekið til starfa.

Gunnar Einarsson, ræddi almennt umbun til starfsmanna.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju fyrirspurn um umbun til starfsmanna.

Gunnar Einarsson, ræddi að nýju um umbun til starfsmanna.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2001426

07

Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 30/11 ´20.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2001161

08

Fundargerðir stjórnar SSH frá 9/11, 16/11 og 23/11 ´20.

Fundargerðirnar lagðar fram.

Málsnúmer 2001161

09

Fundargerð 44. aðalfundar SSH frá 13/11 ´20.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2001357

10

Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 27/11 ´20.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2006025

11

Kosning eins aðalfulltrúa í íþrótta- og tómstundráðs.

"Bæjarstjórn samþykkir að kjósa Þorra Geir Rúnarsson að nýju sem aðalfulltrúa í íþrótta- og tómstundaráð en Þorri Geir flutti tímabundið úr bænum og missti við það kjörgengi til að vera fulltrúi í fastanefnd á vegum bæjarstjórnar."

Málsnúmer 2012025

12

Tillaga um að Garðabær innleiði Framfaravogina mælitæki sem mælir velsæld bæjarbúa.

Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu Garðabæjarlistans.

"Bæjarstjórn samþykkir að hefja vinnu við að greina kosti og galla þess að innleiða Framfaravogina mælitæki sem mælir velsæld bæjarbúa."

Greinargerð:

Samhliða innleiðingu Heimsmarkmiða, Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og þess að Garðabær er þegar orðið Heilsueflandi samfélag er mikilvægt að hafa þar til gerð tæki og tól til þess að mæla árangur.

Velsæld íbúa skiptir máli og því skiptir máli að geta mælt og unnið að betra samfélagi út frá niðurstöðum mælinga. Framfaravogin gefur slíka yfirsýn og hefur þegar sýnt gagnsemi sína í nokkrum sveitarfélögum hér á landi.

Markmið Framfaravogarinnar er að draga fram stöðu félagslegra framfara í samfélaginu og um leið að sýna hvar og hvað má betur fara. Framfaravogin er stjórntæki eða einskonar vegvísir sem hjálpar sveitarfélögum að byggja upp umhverfi og innviði sem stuðla að félagslegu öryggi, heilbrigðum lífsháttum og samfélagslegri þátttöku allra íbúa.

Áherslur á félagslegar framfarir og umbætur er taka tillit til fleiri þátta en efnahagslegra verðmæta einna, hafa aukist verulega á undanförnum misserum. Ein leið til að draga fram stöðuna og stilla upp aðgerðum þar sem að félagslegar framfarir eru hafðar að leiðarljósi er að beita kortlagningu vísitölu félagslegra framfara.

Gunnar Einarsson, ræddi framkomna tillögu og lagði til að tillögunni verði vísað til bæjarráðs.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi framkomna tillögu.

Björg Fenger, ræddi framkomna tillögu.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa framkominni tillögu til bæjarráðs.

Málsnúmer 2012024

13

Tillaga um endurskoðun skólastefnu leik- grunn- og tónlistarskóla Garðabæjar.

Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu Garðabæjarlistans.

"Bæjarstjórn samþykkir að hefja vinnu við endurskoðun á skólastefnu leik-, grunn- og tónlistarskóla Garðabæjar og setja á laggirnar stýrihóp sem ber ábyrgð á þeirri vinnu. Stýrihópur hefji störf strax á nýju ári."

Greinargerð:

Þann 3. október árið 2013 var síðast ákveðið að fara í heildstæða endurskoðun á skólastefnu Garðabæjar. Því er brýnt að koma þeirri vinnu af stað sem allra fyrst. Gildandi skólastefna er þegar orðin barn síns tíma og skortir að spegla það samfélag sem við búum í dag að fullu.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi framkomna tillögu og upplýsti að fyrir lægi að taka málið á dagskrá á næsta fundi skólanefndar sem þegar hefur verið boðaður. Fram kom að málið hefur verið í undirbúningi hjá starfsmönnum skólaskrifstofu. Áslaug Hulda lagði til að tillögunni verði vísað frá.

Ingvar Arnarson, ræddi framkomna tillögu.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi framkomna tillögu.

Gunnar Einarsson, ræddi framkomna tillögu.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi framkomna tillögu.

Ingvar Arnarson, ræddi framkomna tillögu.

Bæjarstjórn samþykkir með átta atkvæðum (SG,ÁHJ,GVG,JS,AG,BF,GE,GS) gegn þremur (SDS,IA,HÞ).að fella framkomna tillögu.

Málsnúmer 2012029

14

Tillaga um að útfæra leiðir til að innleiða fjárhagslega hvata fyrir íbúa sveitarfélagsins sem að stuðla að betri flokkun og úrgangsstjórnun í sveitarfélaginu.

Áslaugu Huldu Jónsdóttur, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu sem hún flytur ásamt. Jónu Sæmundsdóttur.

„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að fela Umhverfisnefnd Garðabæjar að útfæra leiðir til að innleiða fjárhagslega hvata fyrir íbúa sveitarfélagsins sem að stuðla að betri flokkun og úrgangsstjórnun í sveitarfélaginu. Jafnframt að viðurkenningum fyrir góðan eða eftirtektarverðan árangur sem tengjast flokkun og betri úrgangsstjórnun verða hluti af árlegum umhverfisviðurkenningum Garðabæjar. „

Greinargerð:

Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna telur að 70% til 90% nauðsynlegra aðgerða í loftlagsmálum séu bundin sveitarstjórnarstiginu. Hér gegna sveitarfélögin því lykilhlutverki. Það er því mikilvægt að sveitarfélögin taki þátt í þessu mikilvæga verkefni að fullum þunga og horfi þar til úrgangs, flokkun, samgangna, endurheimtur votlendis og aðrar grænar lausnir með það að markmiði að fækka sótsporum í starfsemi sveitarfélagsins.

Allt að 8% af heildarlosun Íslendinga er frá sorpi meðan hún er um 1-3% hjá þjóðum sem við viljum gjarnan bera okkur saman við. Frá því að mælingar hófust um 1990 hefur losunin aukist á Íslandi á sama tíma og hún hefur dregist saman um allt að 70% hjá þjóðum sem eru til fyrirmyndar í þessum málum.

Garðabær hefur lagt mikla áherslu á umhverfismál. Ekkert sveitarfélag hefur friðlýst jafn mikið landsvæði og Garðabær. Bæjarstjórn hefur samþykkt samhljóða að draga úr sótsporum í starfsemi sveitarfélagsins. Græn innkaupastefna, stefna í úrgangsmálum auk þess sem plastnotkun verður minnkuð. Það er því mikilvægt næsta skref að íbúar sveitarfélagsins geti tekið enn meiri þátt og að fundnir verði fjárhagslegir hvatar fyrir íbúa til að gera enn betur.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi framkomna tillögu.

Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi framkomna tillögu.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi framkomna tillögu.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi að nýju framkomna tillögu.

Bæjarstjórn samþykkir framkomna tillögu.

Málsnúmer 2011429

15

Gjaldskrá Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs.

Bæjarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti samhljóða gjaldskrá Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.

Málsnúmer 2006130

16

Gjaldskrá um sorphirðu í Garðabæ.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða gjaldskrá sorphirðu í Garðabæ.

Málsnúmer 2006130

17

Gjaldskrá um hreinsun taðþróa í hesthúsahverfinu við Kjóavelli í Garðabæ.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða gjaldskrá um hreinsun taðþróa í hesthúsahverfinu við Kjóavelli í Garðabæ.

Málsnúmer 2006130

18

Gjaldskrá leikskóla.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða gjaldskrá leikskóla.

Málsnúmer 2006130

19

Gjaldskrá fyrir frístundaheimili.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða gjaldskrá fyrir frístundaheimili.

Málsnúmer 2006130

20

Gjaldskrá fyrir starfsemi frístundar.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða gjaldskrá fyrir starfsemi frístundar.

Málsnúmer 2006130

21

Gjaldskrá vegna skólamálsverða í grunnskólum Garðabæjar.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða gjaldskrá skólamálsverða í grunnskólum Garðabæjar.

Málsnúmer 2006130

22

Gjaldskrá sundlauga Garðabæjar.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða gjaldskrá sundlauga Garðabæjar.

Málsnúmer 2006130

23

Gjaldskrá Bókasafns Garðabæjar.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða gjaldskrá Bókasafns Garðabæjar.

Málsnúmer 2006130

24

Fjárhagsáætlun Garðabæjar árið 2021 (2021-2024)

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri fjallaði um frumvarp að fjárhagsáætlun og gerði grein fyrir eftirfarandi tillögum um breytingar við frumvarp að fjárhagsáætlun.

"Klifið - samningur frá í júlí 2020 1.000.000 Samningur frá 2015 hækkaði.

Skíðasvæði höfuðborgarsvæðis 3.200.000 Samkvæmt tillögu að áætlun.

Jöfnun úrgangsmoldar -15.500.000 Fært á kostnað við gatnagerð.

Rekstur stofnana ýmiss vörukaup -15.000.000 Aðhald stofnana - hagræðing.

Aðalskipulag -5.000.000 Dregið verði úr þjónustukaupum.

Tölvuþjónusta -5.000.000 Aðhaldskrafa - hagræðing.

Samtals lækkun kostnaðar -36.300.000"

Gunnar Valur Gíslsson, tók til máls og þakkaði starfsmönnum bæjarins fyrir þeirra hlut við undirbúning og gerð fjárhagsáætlunar bæjarfélagsins.

Sara Dögg Svanhildardóttir tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun.

"Þrengingar blasa við í fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2021. Við erum að takast á við óvenjulegar aðstæður þar sem utanaðkomandi áhrif, sem ekki verður stjórnað svo glatt, hafa veruleg áhrif á tekjur sveitarfélagsins. Halli á A-hluta verður tæpur hálfur milljarður.

Tekjur úr B sjóði rétta stöðuna þó töluvert þannig að við horfum upp á kringum 40 milljóna króna halla samkvæmt þessari áætlun.

Garðabær er í örum vexti og fjölgun íbúa meiri en víða annars staðar. Íbúavexti fylgja aukin útgjöld vegna lögbundinnar þjónustu en skapa um leið auknar tekjur. Hér fjölgar eldri borgurum mjög og félagsleg þjónusta fer vaxandi. Garðabæjarlistinn hefur áður gert athugasemd við þá aðferðarfræði meirihlutans að vanáætla kerfislega íbúaþróun. Eins hafa tekjur af lóðasölu verið mjög varlega áætlaðar. Nú ert gert ráð fyrir rúmlega 200 m.kr. þegar lóðarsala árið 2020 gaf 1 milljarð í tekjur. Þessi aðferðafræði vanáætlunar og ógagnsæis hugnast okkur í Garðabæjarlistanum ekki. Hér er miðað við að auka óvissu í umhverfi þar sem þegar ríkir óvenjumikil óvissa um stöðu til næstu missera. Við teljum hins vegar að í fjárhagsáætlun þar sem vandað er til verka séu allir óvissuþættir takmarkaðir eins og kostur er. Tekjur sveitarfélagsins geta aukist mjög hratt vegna íbúafjölgunar og lóðasölu.

Kominn er tími fyrir fjárfrekt viðhald á húsnæði bæði leik- og grunnskóla í Garðabæ. Styrking annarrar lögbundinnar þjónustu, sem sveitarfélagið verður að standa undir, þokar hægt áfram. Það er miður að meirihlutinn hafi að undanförnu lagt áherslur á fáar afar fjárfrekar framkvæmdir, í stað þess að stilla þeim upp af hófsemi og geta um leið styrkt innviði leik- og grunnskóla sem eru undirstöður samfélagsins. Nú, í erfiðu efnahagsástandi, bindur það sjóð sveitarfélagsins í báða skó að vera með stóra skuldbindingu í framkvæmd. Við í Garðabæjarlistanum höfum áður gagnrýnt íburð og stórtæki þeirrar framkvæmdar og staðan í dag sýnir enn frekar að þar hefði mátt gæta hófsemi. Öll erum við sammála um mikilvægi þess að bjóða upp á góða aðstöðu íbúa til að stunda íþróttir, menningu og listir eða almenna heilsubót sem ég veit að tilvonandi íþróttamannvirki sem nú rís í Vetrarmýrinni mun gera. En þar hefði mátt gæta meiri ábyrgðar við ákvörðun um þá fjármuni sem ætlað er í slíka aðstöðu.

Það er því miður að sjá að meirihlutinn hafi ekki vilja til að leggja í frekari fjárfestingar til framtíðar. Engar áætlanir liggja fyrir um fjárfestingu í stafrænni tækni þrátt fyrir að nú liggja fyrir kostnaðargreind verkefni sem ráðast má í strax. Frekar er valið að bíða og sjá. Vissulega er hreyfing á málum og mikilvægt að sveitarfélög taki sig saman í stærri verkefnum en það má ekki stoppa eða hægja á þeirri vegferð sem lagt hefur verið upp með. Miklu frekar eiga slík teikn að vera til þess að flýta fyrir og vera hvetjandi til góðra verka strax en ekki seinna. Að gera ekki einu sinni ráð fyrir fjármagni í verkefnið óháð með hvaða hætti farið verður í stafrænar umbreytingar staðfestir stefnuleysið og engan vilja til að vera leiðandi og staðfesta allt tal um snjallvæddan Garðabæ sem hefur ómað þegar vel liggur á.

Von um að verkefninu yrði gefið rými inn í fjárhagsáætlun til næstu ára er úti. Því miður.

En hér hefur Garðabæjarlistinn talað fyrir stærri skrefum í fjárfestingu til að mæta framtíðinni, jafnvel með lántöku. Stafræn tækni getur skapað töluverða hagræðingu í rekstri til framtíðar og með henni skapast svigrúm fyrir sveitarfélagið til að tryggja framúrskarandi starfsfólk til starfa í grunnþjónustu sveitarfélagsins. Garðabæjarlistanum þykir leitt að sjá að ekki sé að finna meiri framsýni í fjárhags- og fjárfestingaráætlunum bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.

Einnig er það mjög miður að sjá að sproti leik- og grunnskólastarfs er skorinn niður með því að skera þróunarsjóð leik- og grunnskóla niður um helming. Þetta er verkefni sem meirihlutinn hefur upphafið í mörg ár. Stolt sveitarfélagsins hefur falist í því að gera betur en margir aðrir til að bæta skólastarf, við að styðja við framþróun og efla kennara. Hér hefur verið tekin ákvörðun um að verja störf og grunnþjónustu, nema hér. Á þessa forgangsröðun getur Garðabæjarlistinn ekki fallist. Hér er ekki um háa fjárhæð að ræða, sem virðist vera hægt að dæla í önnur verkefni. Það er einfaldlega skammarlegt að sjá meirihlutann verja þessa ákvörðun.

Í fjárhagsáætlun meirihlutans er ekki að finna sérstaklega styðjandi aðgerðir í þágu barnafjölskyldna. Enn er ekki rými til að veita systkinaafslátt í íþróttastarfi, líkt og Garðabæjarlistinn hefur margoft lagt fram, auk þess sem það var eitt af 100 loforðum Sjálfstæðisflokksins sem nær ekki í gegn. Þá hefur ekki verið unnið áfram með tillögu okkar í Garðabæjarlistanum um hækkun hvatapeninga, þrátt fyrir að meirihlutinn hafi lagt fram ágæta útfærslu sem fyrsta skref í þá átt með því að tekjutengja hækkun þeirra. Þessar tillögur í þágu barnafjölskyldna líta enn ekki dagsins ljós í fjárhagsáætlun fyrir árið 2021.

Meirihlutanum finnst þess í stað það góð hugmynd að tryggja fjármuni í opnunarhátíð íþróttahúss á kosningavorinu 2022. Svo mikil áhersla er lögð á þessa opnunarhátíð að lagt er til að í fjárhagsáætlun fyrir árin 2021 og 2022 verði kostnaður við hátíðarhöldin upp á hundruð milljóna m.a. falinn undir liðnum tækjakaup. Það er nú allt gagnsæið og faglegheitin við gerð þessarar fjárhagsáætlunar. Allt til að tryggja fjármögnun hátíðar sem öllum má vera nokkuð ljóst að betur færi á að kalla kosningahátíð Sjálfstæðisflokksins 2022.

Að þessu sögðu samþykki ég ekki fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2021."

Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls

Almar Guðmundsson, tók til máls.

Ingvar Arnarson, tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun.

"Árið í ár hefur á margan hátt verið sérstakt og áhrifum kórónaveirunnar gætir alls staðar í samfélaginu og hefur svo sannarlega sett mark sitt á líf fólks og umhverfi. Undirbúningur og vinna við fjárhagsáætlun í ár hefur verið öðruvísi en oft áður og að mínu mati átt að kalla fram kröftuga framtíðarsýn allra bæjarfulltrúa þar sem samstaða, ábyrgð og metnaður hefðu verið í heiðri höfð. Því miður hefur það ekki verið raunin, viðmót meirihlutans hefur í raun verið í þveröfuga átt við þessa sýn og kristallaðist það svo sannarlega á fundi minni- og meirihluta á milli umræðna, það er í raun afturför.

Í fjárhagsáætlun er farið mjög varlega í áætlun um fjölgun íbúa og lóðasölu þó svo að ný hverfi séu í uppbyggingu og enn fleiri að klárast í skipulagsferli. Að mínu mati má gera ráð fyrir að meira komi inn fyrir sölu lóða á þessu ári en gert er ráð fyrir í fjárhagsáætlun.

Það er ánægjulegt að sjá að fé til framkvæmda er töluvert og er það skynsamlegt á þessum tímum. Ég hefði gjarnan viljað sjá metnaðarfulla framkvæmdaáætlun hvað varðar skólahúsnæði í nýjum hverfum. Einnig er komið að miklu viðhaldi á húsnæði í leik- og grunnskólum bæjarins og er nauðsynlegt að bæta verulega í þar.

Það er margt sem að við í Garðabæjarlistanum hefðum viljað sjá inn í þessari áætlun og hefðum gjarnan viljað taka alvöru samtal um. Má þar nefna atriði sem gagnast barnafjölskyldum eins og systkinaafslátt í íþróttum og hækkun hvatapeninga. Hækkun hvatapeninga hefði ekki bara komið til móts við fjölskyldur heldur einnig félög í bænum sem bjóða upp á skipulagt íþrótta og tómstundastarf. Einnig hefðum við viljað leggja fé í stafræna vegferð og vonandi verður raunin þegar að stafrænt ráð sveitarfélaga leggur fram sínar hugmyndir. Með stafrænum lausnum má spara til lengri tíma. Það voru mikil vonbrigði þegar þróunarsjóður leik- og grunnskóla var skorinn niður í ár og enn meiri vonbrigði með þá upphæð sem á að leggja til á árinu 2021.

Þegar að þessi atriði eru skoðuð hefði verið hægt með auðmýkt og samstöðu að finna flöt á þeim sem allir bæjarfulltrúar gætu samþykkt. Það er því miður ekki raunin og þ.a.l. mun ég ekki samþykkja fjárhagsáætlun 2021."

Sigurður Guðmundsson, tók til máls.

Jóna Sæmundsdóttir, tók til máls.

Harpa Þorsteinsdóttir, tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun.

"Hér stendur til að samþykkja fjárhagsáætlun fyrir komandi ár, áætlun sem endurspeglar áherslur í starfsemi sveitarfélagsins og ráðstöfun skattfjár til margvíslegra verkefna sem liggja fyrir. Meirihlutinn, sem eðlinu samkvæmt starfar í anda sjálfstæðismanna hefur ekki haft áhuga á samstarfi og þátttöku allra bæjarfulltrúa við vinnu fjárhagsáætlunar.

Ég tek undir bókanir félaga minna í Garðabæjarlistanum hvað þetta varðar og ítreka mikilvægi þess að leita eftir sjónarmiðum og þátttöku allra sem sitja við bæjarstjórnarborðið við vinnu að fjárhagsáætlun og væri slík samvinna öllum til framdráttar. Í ljósi þeirrar afstöðu sem meirihlutinn hefur gagnvart þeirri vinnu þá get ég ekki samþykkt fjárhagsáætlun fyrir árið 2021."

Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls.

Björg Fenger, tók til máls.

Almar Guðmundsson, tók til máls.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.

Gunnar Einarsson, tók til máls.

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls og lagðir fram eftirfarandi bókun.

"Fjárhagsáætlun Garðabæjar er nú unnin við óvenjulegar aðstæður. Undanfarna mánuði hefur reynt mikið á að halda uppi grunnþjónustu bæjarins bæði út frá sóttvarnaaðgerðum sem og því tekjufalli sem hefur orðið á svo mörgum vígstöðvum í samfélaginu og hefur áhrif á rekstur sveitarfélaga um allt land.

Í forsendum fyrir fjárhagsáætlun Garðabæjar 2021 sem nú liggur fyrir til samþykktar er gert ráð fyrir að þjónusta við bæjarbúa verði áfram eins og best verður á kosið, að ekki verði dregið úr grunnþjónustu vegna samdráttar tekna, að álögum á íbúa verði haldið eins lágum og kostur er og að háu fjárfestingarstigi verði haldið uppi með innviðafjárfestingum sem nemur 3.5 milljörðum króna. Jafnframt verði gætt ítrasta aðhalds í rekstri bæjarins. Gert er ráð fyrir óbreyttu álagningarhlutfalli útsvars 13,7 %, sem er það lægsta sem þekkist meðal stærri sveitarfélaga landsins.

Fjárhagsstaða Garðabæjar er traust, skuldir eru hóflegar og langt undir viðmiðunarmörkum samkvæmt 2. tl. 2. mgr. 60. gr. sveitarstjórnarlaga en þar er mælt fyrir um að skuldir megi ekki vera hærri en sem nemur 150% af reglulegum tekjum. Skuldaviðmið verður 88,3% sem er mjög ásættanlegt.

Í Garðabæ hefur uppbygging á nýjum svæðum verið jöfn og þétt og þrátt fyrir óvissuástand eru það jákvæðar fréttir að á næstu misserum koma til uppbyggingar svæði í Garðabæ sem gefa bæjarfélaginu umtalsverðar tekjur inn í framtíðina, t.d. í Vetrarmýri og Hnoðraholti, við Lyngás, í Urriðaholti, á miðsvæði Álftaness og á Garðaholti."

Áslaug Hulda ítrekaði þakkir til starfsmanna bæjarins fyrir þeirra vinnu við undirbúning og gerð fjárhagaáætlunar Garðabæjar.“

Bæjarstjórn samþykkir með átta atkvæðum (SG,ÁHJ, GVG,JS,AG,BF,GE,GS) tillögu um breytingar á frumvarpi að fjárhagsáætlun. Sara Dögg Svanhildardóttir greiðir atkvæði gegn tillögunni. Ingvar Arnarson og Harpa Þorsteinsdóttir sitja hjá.

Bæjarstjórn samþykkir framkvæmdayfirlit fjárhagsáætlunar með átta atkvæðum (SG,ÁHJ, GVG,JS,AG,BF,GE,GS). Þrír greiða atkvæði gegn samþykkt framkvæmdayfirlits fjárhagsáætlunar (SDS,IA,HÞ).

Bæjarstjórn samþykkir frumvarp að fjárhagsáætlun með framkomnum breytingartillögum sem fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2021-2024 með átta atkvæðum (SG,ÁHJ,GVG, JS,AG,BF,GE,GS) Þrír greiða atkvæði á gegn samþykkt fjárhagsáætlunar (SDS,IA,HÞ).

Niðurstöður rekstrarreiknings fyrir A og B hluta samkvæmt fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2021- 2024 eru:

2021 2022 2023 2024

Tekjur: 17.393.686 18.673.889 19.633.390 20.328.342

Gjöld: 15.733.627 16.174.555 16.764.934 17.371.631

Rekstrarniðurstaða f. afskriftir: 1.660.059 2.499.333 2.868.457 2.956.711

Afskriftir (1.041.932) (1.165.420) (1.237.896) (1.308.183)

Rekstrarniðurst. án fjárm.tekna/gjalda (618.127) 1.333.913 1.630.560 1.648.528

Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) (652.698) (749.156) (778.884) (780.540)

Rekstrarniðurstaða (34.571) 584.757 851.677 867.989