Tillaga Garðabæjarlistans um að Garðabær innleiði Framfaravogina, mælitæki sem mælir velsæld bæjarbúa.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
49. (1957). fundur
Bæjarráð samþykkir að vísa til bæjarstjóra að afla upplýsinga og láta kanna kosti og galla þess að innleiða Framfaravogina sem mælir velsæld bæjarbúa og almennt að skoða heildstæða nálgun á mælingum í starfsemi bæjarins.
Fylgiskjöl
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
18. (877). fundur
Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu Garðabæjarlistans.
"Bæjarstjórn samþykkir að hefja vinnu við að greina kosti og galla þess að innleiða Framfaravogina mælitæki sem mælir velsæld bæjarbúa."
Greinargerð:
Samhliða innleiðingu Heimsmarkmiða, Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og þess að Garðabær er þegar orðið Heilsueflandi samfélag er mikilvægt að hafa þar til gerð tæki og tól til þess að mæla árangur.
Velsæld íbúa skiptir máli og því skiptir máli að geta mælt og unnið að betra samfélagi út frá niðurstöðum mælinga. Framfaravogin gefur slíka yfirsýn og hefur þegar sýnt gagnsemi sína í nokkrum sveitarfélögum hér á landi.
Markmið Framfaravogarinnar er að draga fram stöðu félagslegra framfara í samfélaginu og um leið að sýna hvar og hvað má betur fara. Framfaravogin er stjórntæki eða einskonar vegvísir sem hjálpar sveitarfélögum að byggja upp umhverfi og innviði sem stuðla að félagslegu öryggi, heilbrigðum lífsháttum og samfélagslegri þátttöku allra íbúa.
Áherslur á félagslegar framfarir og umbætur er taka tillit til fleiri þátta en efnahagslegra verðmæta einna, hafa aukist verulega á undanförnum misserum. Ein leið til að draga fram stöðuna og stilla upp aðgerðum þar sem að félagslegar framfarir eru hafðar að leiðarljósi er að beita kortlagningu vísitölu félagslegra framfara.
Gunnar Einarsson, ræddi framkomna tillögu og lagði til að tillögunni verði vísað til bæjarráðs.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi framkomna tillögu.
Björg Fenger, ræddi framkomna tillögu.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa framkominni tillögu til bæjarráðs.