Tillaga um endurskoðun skólastefnu leik- grunn- og tónlistarskóla Garðabæjar.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
18. (877). fundur
Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu Garðabæjarlistans.
"Bæjarstjórn samþykkir að hefja vinnu við endurskoðun á skólastefnu leik-, grunn- og tónlistarskóla Garðabæjar og setja á laggirnar stýrihóp sem ber ábyrgð á þeirri vinnu. Stýrihópur hefji störf strax á nýju ári."
Greinargerð:
Þann 3. október árið 2013 var síðast ákveðið að fara í heildstæða endurskoðun á skólastefnu Garðabæjar. Því er brýnt að koma þeirri vinnu af stað sem allra fyrst. Gildandi skólastefna er þegar orðin barn síns tíma og skortir að spegla það samfélag sem við búum í dag að fullu.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi framkomna tillögu og upplýsti að fyrir lægi að taka málið á dagskrá á næsta fundi skólanefndar sem þegar hefur verið boðaður. Fram kom að málið hefur verið í undirbúningi hjá starfsmönnum skólaskrifstofu. Áslaug Hulda lagði til að tillögunni verði vísað frá.
Ingvar Arnarson, ræddi framkomna tillögu.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi framkomna tillögu.
Gunnar Einarsson, ræddi framkomna tillögu.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi framkomna tillögu.
Ingvar Arnarson, ræddi framkomna tillögu.
Bæjarstjórn samþykkir með átta atkvæðum (SG,ÁHJ,GVG,JS,AG,BF,GE,GS) gegn þremur (SDS,IA,HÞ).að fella framkomna tillögu.