Fundargerð bæjarráðs frá 1/12 ´20.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
18. (877). fundur
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 2. tl., stöðumat starfshóps sem skipaður var til að tryggja eftirfylgni með stöðu barna í COVID-19 og 15. tl., gerðardóm í deilumáli ÍAV og Garðabæjar um grundunaraðstæður fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri. Sara lagði fram eftirfarandi bókun:
"Við í Garðabæjarlistanum höfum frá upphafi haft áhyggjur af því að ÍAV myndi reyna að sækja á Garðabæ vegna grundunar og undirstöðu hússins. Þessar áhyggjur voru ræddar við meirihlutann áður en samningar voru undirritaðir í desember 2018. Þá var okkur tjáð að það þyrfti ekki að hafa miklar áhyggjur af þessu, verkið væri í alútboði og hús hafi oft áður verið reist í mýri á súlum. Annað hefur nú komið á daginn. Eftir að deilan fór í þennan farveg höfum við í Garðabæjarlistanum haft efasemdir um að Garðabær væri í fullum rétti gagnvart kröfu ÍAV verktaka. Rök bæjarstjóra um að mýri væri bara mýri héldu því miður ekki að okkar mati.
En um það snerist deilan eins og allir vita. Það var deilt um hvort grunnupplýsingar í útboðslýsingu hefðu verið fullnægjandi og svo var ekki. Og ábyrgðin er alfarið á hendi Garðabæjar að uppfylla þær kröfur þegar jarðvegur undir byggingu á í hlut. Og er það ámælisvert að okkar mati hversu óábyrgt hefur verið gengið fram í þeim efnum.
Rannsókn var hafin fyrir margt löngu á jarðvegi en aldrei kláruð. Hitt sem síðan sömuleiðis er ámælisvert er að ekki hafði verið gengið frá deiliskipulagi þegar ákvörðun um staðsetningu byggingar var tekin. Það er rekið í gerðardómnum sömuleiðis.
Hér höfum við enn eitt dæmið um galla á opinberum innkaupum sveitarfélaga.
Niðurstaðan er áfellisdómur fyrir sjálfstæðismenn í meirihluta bæjarstjórnar Garðabæjar. Hér fara ákvarðanir og allt tal um ábyrga fjármálastjórn því miður ekki saman. Það gengur ekki að farið sé með skattfé íbúa ítrekað í málaferli. Næg eru verkefnin fyrir sem skortir fjármagn."
Gunnar Einarsson, ræddi 2. tl., stöðumat starfshóps sem skipaður var til að tryggja eftirfylgni með stöðu barna í COVID-19 og 15. tl., gerðardóm í deilumáli ÍAV og Garðabæjar um grundunaraðstæður fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri. Gunnar lagði fram eftirfarandi bókun:
"Framkvæmdir við fjölnota íþróttahúsið sem nú er að rísa í Vetrarmýri hafa gengið vel í haust eftir að verkið hófst á ný í lok sumars. Um tíma lágu framkvæmdir niðri vegna ágreinings Garðabæjar og Íslenskra aðalverktaka um kostnað við grundun hússins.
Í sumar var gert samkomulag um úrlausn ágreinings og gerðardómsmeðferð eftir viðræður og sáttaferli milli Garðabæjar og ÍAV. Með samkomulaginu var tryggt að verkið gæti haldið áfram þar til niðurstaða um úrlausn málsins lægi fyrir. Málsaðilar voru sammála um að fjárhæð sú sem færi fyrir gerðardóm næmi um 200 mkr. Gerðardómur kom saman í haust og í niðurstöðum dómsins sem birtur var aðilum 23. nóvember sl. fellur um 166 mkr viðbótarkostnaður í hlut Garðabæjar og um 35 mkr á ÍAV.
Í niðurstöðu gerðardóms segir að ekki er talinn vafi á að mannvirkið þoli hugsanlegar grunnvatnsbreytingar á svæðinu umhverfis íþróttahúsið í framtíðinni en að upphafleg lausn hefði ekki uppfyllt það skilyrði jafn vel. Dómurinn telur að í því felist verðmæti fyrir Garðabæ við framtíðaruppbyggingu nærliggjandi svæðis. Fyrir vikið fá Garðbæingar enn betra mannvirki sem mun um langt skeið nýtast vel fyrir þá íþróttastarfsemi og heilsueflingu sem verður starfrækt í húsinu og mun skapa bæjarbúum margvísleg tækifæri til heilsubótar um áratuga skeið.
Minnihlutinn í bæjarstjórn gerði engar athugasemdir á neinu stigi málsins um þær faglegu forsendur sem lágu til grundvallar samningum við ÍAV og síðari viðauka við þá. Þegar ágreiningur kom upp milli Garðabæjar og Íslenskra aðalverktaka um kostnað við grundun hússins lagði minnihlutinn til að ekki yrði farin sáttaleið heldur yrði ÍAV stefnt fyrir vanefndir. Það hefði þýtt að bjóða yrði verkið út aftur með óvissu um hvaða tilboð kæmi, tafir og 2-3 ára dómsmál. Meirihluti bæjarstjórnar mat það svo að slík vegferð myndi kosta bæjarfélagið mun meira bæði fjárhagslega og í óásættanlegum töfum á nýtingu mannvirkisins."
Ingvar Arnarson, ræddi 15. tl., gerðardóm í deilumáli ÍAV og Garðabæjar um grundunaraðstæður fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri, 13. tl., fyrirspurn Garðabæjarlistans um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Ingvar lagði til að svörin verði lögð fram í fjölskylduráði og samráðshópi um málefni fatlaðs fólks.
Almar Guðmundsson, ræddi 15. tl., gerðardóm í deilumáli ÍAV og Garðabæjar um grundunaraðstæður fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri,
Björg Fenger, ræddi 15 tl., gerðardóm í deilumáli ÍAV og Garðabæjar um grundunaraðstæður fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 15. tl., gerðardóm í deilumáli ÍAV og Garðabæjar um grundunaraðstæður fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri.
Ingvar Arnarson, ræddi 15. tl., gerðardóm í deilumáli ÍAV og Garðabæjar um grundunaraðstæður fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 15. tl., gerðardóm í deilumáli ÍAV og Garðabæjar um grundunaraðstæður fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri.
Gunnar Einarsson, ræddi 15. tl., gerðardóm í deilumáli ÍAV og Garðabæjar um grundunaraðstæður fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri,
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 15. tl., gerðardóm í deilumáli ÍAV og Garðabæjar um grundunaraðstæður fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri,
Almar Guðmundsson, ræddi 15. tl., gerðardóm í deilumáli ÍAV og Garðabæjar um grundunaraðstæður fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri.
Fundargerðin sem er 21 tl. er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.