Tillaga um að útfæra leiðir til að innleiða fjárhagslega hvata fyrir íbúa sveitarfélagsins sem að stuðla að betri flokkun og úrgangsstjórnun.
Ferill máls
Umhverfisnefnd Garðabæjar
01
28. fundur
Vinna er varðar samræmingu á sorphirðu á höfuðborgarsvæðinu er langt komin og mun tækni- og umhverfissvið skoða leiðir til að innleiða fjárhagslega hvata til flokkunar og úrgangsstjórnunar í framhaldi af þeirri vinnu.
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
18. (877). fundur
Áslaugu Huldu Jónsdóttur, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu sem hún flytur ásamt. Jónu Sæmundsdóttur.
„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að fela Umhverfisnefnd Garðabæjar að útfæra leiðir til að innleiða fjárhagslega hvata fyrir íbúa sveitarfélagsins sem að stuðla að betri flokkun og úrgangsstjórnun í sveitarfélaginu. Jafnframt að viðurkenningum fyrir góðan eða eftirtektarverðan árangur sem tengjast flokkun og betri úrgangsstjórnun verða hluti af árlegum umhverfisviðurkenningum Garðabæjar. „
Greinargerð:
Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna telur að 70% til 90% nauðsynlegra aðgerða í loftlagsmálum séu bundin sveitarstjórnarstiginu. Hér gegna sveitarfélögin því lykilhlutverki. Það er því mikilvægt að sveitarfélögin taki þátt í þessu mikilvæga verkefni að fullum þunga og horfi þar til úrgangs, flokkun, samgangna, endurheimtur votlendis og aðrar grænar lausnir með það að markmiði að fækka sótsporum í starfsemi sveitarfélagsins.
Allt að 8% af heildarlosun Íslendinga er frá sorpi meðan hún er um 1-3% hjá þjóðum sem við viljum gjarnan bera okkur saman við. Frá því að mælingar hófust um 1990 hefur losunin aukist á Íslandi á sama tíma og hún hefur dregist saman um allt að 70% hjá þjóðum sem eru til fyrirmyndar í þessum málum.
Garðabær hefur lagt mikla áherslu á umhverfismál. Ekkert sveitarfélag hefur friðlýst jafn mikið landsvæði og Garðabær. Bæjarstjórn hefur samþykkt samhljóða að draga úr sótsporum í starfsemi sveitarfélagsins. Græn innkaupastefna, stefna í úrgangsmálum auk þess sem plastnotkun verður minnkuð. Það er því mikilvægt næsta skref að íbúar sveitarfélagsins geti tekið enn meiri þátt og að fundnir verði fjárhagslegir hvatar fyrir íbúa til að gera enn betur.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi framkomna tillögu.
Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi framkomna tillögu.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi framkomna tillögu.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi að nýju framkomna tillögu.
Bæjarstjórn samþykkir framkomna tillögu.