Austurhraun 7 og 9. Breyting á deiliskipulagi Molduhrauns
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
8. (867). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Molduhrauns í tilefni umsóknar um stækkun á lóðinni við Austurhraun 9 og breytingar á göngustíg milli lóðanna við Austurhraun 7 og 9, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal lóðarhöfum við Miðhraun, Austurhraun og Vesturhraun. (Mál nr. 2004161)
Bæjarráð Garðabæjar
03
17. (1926). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Molduhrauns í tilefni umsóknar um stækkun á lóðinni við Austurhraun 9 og breytingar á göngustíg milli lóðanna við Austurhraun 7 og 9, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal lóðarhöfum við Miðhraun, Austurhraun og Vesturhraun.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
5. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir því að lóðin Ausuthraun 9 stækki sem nemi svæði sem tilheyrir bæjarlandi þar sem gert er ráð fyrir göngstíg á milli Miðhrauns og Austurhrauns. Sá stígur hefur ekki verið lagður. Í stað stígsins komi kvöð um gönguleið í gegnum lóðina á sama stað og stígurinn lá. Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Molduhrauns í samræmi við 2.mgr.43.greinar Skipulagslaga nr.123/2010 vísar tillögunni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal lóðarhöfum við Miðhraun, Austurhraun og Vesturhraun.