Grænigarður - nýtt deiliskipulag - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
8. fundur
Lagt fram samþykki allra umráðenda Grænagarðs um að óskað verði eftir skipulagsferli með það að markmiði að lóð íbúðarhússins verði skilgreind sem íbúðarbyggð í aðalskipulagi og sem einbýlishúslóð í deiliskipulagi. Málinu vísað til mótunar tillagna að skipulagsbreytingum í Garðahverfi sem eru í undirbúningi.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
5. fundur
Lögð fram fyrirspurn til skipulagsnefndar um tillögu að breytingu deiliskipulags Garðahverfis sem gerir ráð fyrir íbúðarhúslóð umhverfis húsið Grænagarð sem stendur á svæði sem skilgreint er sem opið svæði í Aðalskipulagi Garðabæjar og sem skógræktarsvæði í deiliskipulagi Garðahverfis. Skipulagsnefnd er jákvæð gagnvart tillögunni en telur að setja þurfi fyrirvara um aðkomu að lóðinni sem geti breyst þegar að Garðaholt verður deiliskipulagt. Tillagan kallar á aðalskipulagsbreytingu. Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.